Svarthöfði

Þegar ég sé myndir af fólki í Star Wars búningum fæ ég einkennilega tilfinningu, blanda af kjánahroll og öfund. Því þegar maður sér metnaðinn sem lagt er í t.d. búninginn af Darth Vader, þá hríslast lítil hugmynd í heilahvelinu, og einsog illkynja æxli, gæti hún tekið yfirhöndina og dregið mig til samfélagslegum dauða. Bara hugmyndin að kaupa Darth Vader búning og stika um bæjinn einsog ekkert væri er freisting dauðans - en ég má ekki gefa eftir til myrku hliðarinnar.

(5) athugasemdir left to “Svarthöfði”

  1. Matti skrifaði:

    Draumur minn er að pæta í svarthöfðabúning í prestaröðina við setningu prestaþings.

  2. Alexandra skrifaði:

    http://www.buystarwarscostumes.com/pet_dog_darth_vader.html

  3. Matti skrifaði:

    Hvernig fer maður eiginlega að því að skrifa “mæta” sem “pæta” ?

  4. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Haha, það er ansi dularfullt.

    En að spandera sextíuþúsund krónum í þetta… kannski maður leggur frá í sérstakan Svarthöfða-sjóð.

    Þetta væri eðaldjammbúningur.

  5. Mummi skrifaði:

    Holy moly. Það væri náttúrulega *bara* fyndið að mæta í svona búning (eða Stormtrooper?) og spássera í kringum prestana í þeirra Stormtrooper búningum.

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)