Einn ískaldann svona í morgunsárið

Karl faðir minn var að tína til nokkrar dósir og flöskur til að fara með í endurvinnslu. Á pallinum fyrir utan var poki með smá rusli, aðallega umbúðir af bjórkippum. Er hann gramsaði þar í fann hann þessa dýrindis flösku, óopnaðan og vel kældan Carlsberg. Ég hefði fellt tár ef ég væri ekki svona mikið heljarmenni sem pissar brennisteinssýru og kúkar demöntum. Ég læt duga að setja smá bjórdropa á kinnarnar og ímynda mér að ég hafi tárast af ánægju, bara svona til að fá smá hugmynd hvað tilfinningar eru. En eitt veit ég þó, það er aldeilis gott að fá sér bjór eftir næturvakt í kolanámunni.

Hjúkrunarheimilinu meina ég. Mismælti mig þarna.

(5) athugasemdir left to “Einn ískaldann svona í morgunsárið”

  1. bessi skrifaði:

    ömurleg framsetning á nýja blogginu, hata þig - Bessi

  2. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Hvað meinarru?!

  3. bessi skrifaði:

    ekkert… bara smá sprell hjá mér!

  4. Laufey skrifaði:

    Æi…útlitið á fyrri síðunni var pínu meira svona homí stemmning. Vantar alveg heilamyndina góðu sem var svo inviting.
    Ég finn meira fyrir svona Peter Parker stemmara, gaur sem ætlar sér í blaðamennsku en við vitum audda öll að þú ert samt Spiderman.

  5. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Mér finnst þetta vera svo sæmilega einfalt og stílhreint.

    En heilamyndin góða. Ég geri bara version 2.0 af því.

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)