Drullulurkar og dusilmenni
Munu þessir útúrtjúnuðu og ellupoppuðu mannvitsbrekkur ekki vera rónni fyrren einhver af þessum moðhausum ná virkilega að drepa einhvern og þar með koma Höfn á kortið sem þriðji hættulegasti staðurinn á landinu á eftir Keflavík og Reykjavík? Það væri glæsilegur árangur, ef takmarkið er að gera þennan smábæ að fýsilegum kosti fyrir kuntudólga með kriminal tendensa. Má ég nú frekar biðja um hampreykjandi hippa og kommúnista frekar en eins atkvæða hellisbúa sem telja nauðgun jafngilda ást.
Á Vísi.is er greint frá árás sem átti sér stað fyrir utan Víkina aðfaranótt laugardags þann 22. mars. Ráðist var aftan að Böðvari Reynissyni, söngvara í hljómsveitinni Dalton, með glasi eða flösku með þeim afleiðingum að hann skarst illa á háls, það kom þriggja sentímetra djúpur skurður og kauði missti næstum tvo lítra af blóði.
Það sem gleymist að segja frá er fádæma hetjuleg frammistaða frænda míns Kristjáns sem stöðvaði blæðinguna meðan beðið var eftir aðstoð og að Stjáni, sem hefur nú til margra ára sungið í hljómsveitinni Parket sem einatt voru að spila á Víkinni þetta sama kvöld, hafi verið það óeigingjarn að munda míkrófónin fyrir Böðvar á Neskaupsstað og Fellabæ, laugardags- og sunnudagskvöld sömu helgi.
Hvað ætli Böðvar Reynison hafi gert skítseiðinu sem varð honum næstum að bana? Kannski bent á að hann væri í ljótum buxum? Að hann væri með stuttar lappir og langan maga? Máske að hann væri illa rakaður? Var kannski nóg fyrir Böðvar að vera ekki héðan? Ekki nógu lókal fyrir lókal pöbbinn?
Það hefur eflaust verið einhver ein af þessum klassísku ómerkilegu ástæðum sem aðeins einstaklingar með einum litningi of mikið telja vera nægileg ástæða til ofbeldisverka þegar orðaforði og skýr hugsun gengur ekki.
Eins þegar maður var vitni af því að Villi, söngvarinn og gítarleikarinn í Vax, var skallaður fyrir utan sama stað á Norðuljósablús. Ástæðan ku vera sú að hann hafi kallað eitt Beckham-vönnabíið barbídúkku. Kræst! Það er ekki einsog Villi hafi haft rangt fyrir sér! Við erum að tala um mann sem virðist vakna klukkan sex á morgnana svo hann gæti meikað sig áður hann lætur sjá sig meðal siðaðra manna (eða villimanna). Gaur sem á eflaust alla þættina með Queer Eye og horfir á það reglulega svo það síist inní báðar þrjár heilasellurnar hvernig skal raka sig og greiða. Dæmigerð athyglismella sem heldur að hann geti falið gagnkynhneigð sína með því hóta barsmíðum. Afar vanþenkjandi einstaklingur, gæti átt í erfiðleikum með orð sem innihalda stafi. Kannski að ég taki það fram að þessi búðingur réðst ekki beinlínis á Villa, en á stóran þátt í því með því hvetja eflaust til þess.
En ég er afskaplega ánægður með Böðvar að hafa kært þessa árás, gefur kannski moðerfokking augaleið en það er nú svo að það hefur hent ansi oft í gegnum tíðina hér á Höfn er fólk hefur verið misþyrmt að það hefur bara látið það yfir sig ganga og reynt að gleyma og/eða fyrirgefa verknaðinn eða álíka kristilegt kjaftæði. En auðvitað á að kæra svona árás. Rétt einsog að aðiljinn sem var misþyrmdur á Miklagarði í þrjá tíma af tveimur neanðerdeltussum ætti alveg hiklaust að kæra. En maður hefur bara ekkert heyrt af því og það læðist að manni grunur að engin kæra er í bígerð.
Að kæra svona greindarskertur skepnur er ein af fáu aðferðunum til að kynna þeim fyrir veruleikanum sem þeir búa í: orsök og fokking afleiðing. Önnur aðferð er að leyfa þessu háttalagi að stigmagnast þar til eina kvöldstundina mætir hinn klassíski slefandi fæðingarhálfviti hálfum bænum sem munda heykvísla, kyndla, tjöru og fjaðrapoka. Og svipurinn á múgnum er glaðhlakkalegt hatur.
Það ætti að vera auðveldara að taka á svona vandamáli í 2000 manna smábæ frekar en 150.000 manna smáborg. En vonandi að það þróist samt ekki í “for the common good”-mentalíti einsog í Hot Fuzz.
Óskar P. Einarsson skrifaði:
Hmmm…þriðji hættulegasti staðurinn á eftir Keflavík og BREIÐHOLTI.
Skrifað þann 29-Mar-08 klukkan 11:44 pm | Fastan hlekk