Stan Winston er fallinn frá

Ég verð að brjóta odd af oflæti mínu og birta færslu á óheila tímanum og tilkynna þau sorgartíðindi að tæknibrellufrömuðurinn og meiköpp-listamaðurinn Stan Winston er dáinn. Þessi mikli meistari er einna frægastur fyrir hlut sinn í The Thing, Terminator, Aliens og Predator og hafði ómæld áhrif á martraðir barna og unglinga. Meðal nýjustu myndana sem hann sá um var meðal annars Iron Man, og þó ég hafi ekkert haft gífurlega gaman af þeirri mynd þá verður að segjast að brellurnar í henni voru alvep top-notch. Svo má sjá afrakstur meistarans í mynd James Cameron: Avatar, sem verður að öllum líkindum stórkostlegt stöff.

(3) athugasemdir left to “Stan Winston er fallinn frá”

  1. Teitur Atlason skrifaði:

    Hausinn sem fæturnar uxu út úr í THING er ógleymanlegur.

  2. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Eða þegar veiðimaðurinn í Predator tekur af sér grímuna. “You are one ugly motherfucker!”

  3. Flemmi Pungagervert skrifaði:

    Mikill meistari fallinn frá, hann situr nú í hátæknivæddum hægindastól handan móðunnar miklu og gerir grín að Rambo og Stíven Spílberg.

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)