Hvítabjörn

Var að hlusta aðeins á fréttir og það vakti athygli að ekkert var minnst á hugsanlegan hvítabjörn á landinu. Fannst þetta stinga töluvert í stúf og vakti þvílíkar áhyggjur. Er hvítabjörn á skerinu að éta alla sem taka eftir honum?

Hélt ég hafði séð hvítabjörn rétt áðan. Dýrið nálgaðist óðfluga. Ég prófaði að syngja og klæða mig úr fötunum, þorði varla að hreyfa mig og var bara einsog límdur við sætið þangað til kettlingurinn beit í tærnar á mér.

Þar munaði mjóu.

En, það er allavega einn dagur síðan það sást næstum í hvítabjörn.

(4) athugasemdir left to “Hvítabjörn”

  1. Alexandra skrifaði:

    Já, ég hélt líka að ég hafi séð ísbjörn áðan.
    En þá var þetta bara Sigríður klingenberg í hvítu.

  2. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Össs… þar munaði mjóu.

    Var á rúntinum í gær, hélt um tíma að það væri Hvítabjörn í bílnum.

    En það var bara Júlli.

  3. Alexandra skrifaði:

    Í hvítu?

  4. Alexandra skrifaði:

    Sá líka bjarnaspor í garðinum mínum um daginn.
    Það var bara Ægir

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)