Aumingja Edvarður
Hefurðu heyrt fregnir um hann Edvarð? Að á hnakkanum hans var andlit af konu eða ungri stúlku. Sagt var að það mundi draga hann til dauða ef andlitið væri fjarlægt, svo aumingja Edvarður var dauðadæmdur. Þetta andlit gat víst hlegið og grátið, hún var víst illi tvíburi hans. Hún talaði við hann að næturþeli um hluti sem aðeins heyrðust í helvíti. Það var víst ómögulegt að aðskilja þau, svo þau voru hlekkjuð saman fyrir lífstíð. En loks kom að dauðastund þegar hann leigði sér herbergisvítu og hengdi sig og hana á svalarimlunum. Sumir trúa því enn að hann hafi frelsast frá henni, en ég þekkti hana bara of vel. Því ég tel að hún hafi ýtt honum til sjálfsmorðs og dregið aumingja Edvarð til helvítis.
Einar Steinn skrifaði:
Heyrt hef ég fregnina og held upp á lagið af þessari stórgóðu plötu Waits. Flott þýðing hjá þér.
Skrifað þann 17-Sep-08 klukkan 6:32 pm | Fastan hlekk