Eini bitri maðurinn í smábænum

Labbaði framhjá litlum æfingafótboltavelli þar sem einhverjir karlkyns-únglíngar voru að sparka tuðru sín á milli og ég hugsaði með sjálfum mér “Þvílík fífl!” og andvarpaði “getur þetta pakk ekki hangið inni, spilað tölvuleiki og verið ekki í minni augsýn?”

Fór á sportbarinn og pantaði mér pizzu og bjór. Sat, snæddi og sötraði þar til ég varð saddur. Inn gekk maður með þvílíka ístru og með fokking belti yfir peysunni til að hindra svuntuna frá því að ráðast á mann. Ég horfði á hann með andstyggðaraugum. “Feita fífl!”

Svo skrapp ég á lókalinn og settist niður með bjór í hönd. Þar sátu einhverja tveir hálfvitar að horfa á fótbolta með jafnmiklum áhuga og maður rúnkar sér. Hlustaði aðeins á þeirra aumkunarverður tilraunir til að tala saman. Horfði með haukfráum augum á lúðann sem vildi vera svalur sem sagði “Hey, getur fyrirtæki fengið arð ef það er í mínus?” , feiti aulinn með skallablettinn svaraði “Nei, það stendur í lögum” og svo héldu þeir áfram á þessum ömurlegu nótum og þetta var svo smásmugulegur rembingur að vera gáfaður að mig langaði svo að segja “Haldiði kjafti, fíflin ykkar!”

Endaði svo heima hjá mér og hataði allt.

Djöfulsins fífl.

(2) athugasemdir left to “Eini bitri maðurinn í smábænum”

  1. Ragnar skrifaði:

    Fátækur ertu greyið bæði af anda og orðum!

  2. Þórður Ingvarsson skrifaði:

    Það er rétt.

    Agalega andlaus og orðlaus þessa dagana.

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)