Mikill léttir (að skíta það er að segja)
Jæja. Ekki þurfti prest til að særa burt þennan draugalort einsog Teiti grunaði að hér væri á ferð. Allt er þegar þrennt er og í þriðja sinn dró ég niður buxur og brækur tyllti ég mér á klósettið og tefldi við páfann meðan ég gluggaði í DV. Það var af sem áður og þetta var sæmilega erfið fæðing - var dálítið smeykur að gyllinæðin mundi leita hefnda, en svo var ekki.
Úr endaþarmsopinu skutust út tvíburar. Bono og eitthvað örverpi. Ég andvarpaði með bros á vör og svo þurfti ekki nema eitt skein, sem er náttúrulega algjört afbragð og auk þess heppilegt í kreppunni - ekkert óþarfa bruðl með klósettpappír.
Ég er alveg afskaplega ánægður með afrakstur dagsins, þarf allavega ekki að fá stómapoka hjá sýslumanni.
Áfram ég!
Skrifaðu athugasemd