Langþráður draumur um bar

Einsog von er vís og vera ber og þrátt fyrir allt og hvaðeina þá á ég mér draum. Nei, þetta er ekki draumur um að vera milljóner, né frægð og hvað þá frama. Þetta er sambærilegur draumur sem margir kommúnistar hafa um að eigna sér sveitabýli, rækta kartöflur og vera sjálfbær. Minn draumur er bara miklu betri. Draumurinn er á þá hógværu leið að opna litla búllu sem selur bjór á einhverjum litlum og rólegum stað á landsbyggðinni. Ósköp lítillátan, snyrtilega subbulegan áningarstað fyrir þreytta ferðalanga og ölþyrsta gesti.

Ég sé fyrir mér að innviðið yrði flest úr dökkum viði. Barinn væri sæmilega grand, smá skreytingar að framan kannski, eitthvað útskorið og töff. Auðvitað barkollar boltaðir við gólfið við barborðið. Svo la pièce de résistance er risastór og gullrammaður spegill a veggnum fyrir aftan barinn. Nokkur borð og nokkrir stólar, kannski einn dökkbrúnn leðurhornsófi. Glymskratti sem spilar aðeins rokk og ekkert rugl.

Ljósin verða mjög takmörkuð, eini staðurinn sem væri vel upplýstur yrði klósettaðstaðan sem verður bjartara og óþægilegra en tannlæknastofa - semsagt sálfræðilegur hernaður til að hindra fólk frá því að yfirgefa barinn og fara míga, alveg dýrmætur tími sem hefði frekar getað farið í að drekka bjór og pissað frekar á sig á leiðinni heim.

Já. Erum kannski að tala um 80 fermetra rými með kjallara.

Meira segja kominn með nafn : Kúpling

Fæ vatn í munninn.

Harðir gaurar - sena 23

Þetta er brot úr væntanlegri íslenskri krimmamynd sem Júlíus Kemp leikstýrir og skrifaði handritið. Júlíus Kemp er einna þekktastur fyrir bílaauglýsinguna Blossi 810551. Hrafn Gunnlaugsson framleiðir.

Sena 23

Doddi morðingi: Djöfull á ég eftir að fokka þér upp!
Brjálaði Danni: Bíddu! Ertu að biðja um að vera barinn í grímuna?
Doddi morðingi: Ekki fara skæla ræfillinn þinn!
Brjálaði Danni: Sko, ég mun svoleiðis þrusa í punginn á þér að átt eftir að kasta upp eistunum og…
Doddi morðingi: Þykist þú vera harður?
Brjálaði Danni: Harður einsog stál!
Doddi morðingi: Ef þú ert harður einsog stál þá get ég auðveldlega skorið þig, því ég er fokking 187 karata demantur móðurserðir.
[Doddi morðingi fokkar brjálaða Danna upp]

Tvær hentugar atvinnuskapandi lausnir

Þar sem ég er hugmyndaríkur hugvitsmaður, örlátur öðlingur og gjafmildur gæðingur þá ætla ég  í minni einskærri góðmennsku benda á allavega tvo þætti - nei! - í raun tvær skotheldar lausnir sem gæti minnkað atvinnuleysið um allavega milljón og þjóðarbúskapurinn, efnahagurinn og hvaðeina mun eflast - við erum að tala um aukna atvinnu, töluverðan fjölda sprotafyrirtækja, ferðamannaiðnaðurinn mun aðeins stækka við sig og ótölulegur fjöldi af áður óþekktum frábærleika á eftir að henta. Ég sé blóm í haga, hamingju og gleði ef aðeins:

Fíkniefni verða lögleidd.
Hórdómur verður leyfður.

Það getur ekki gert hlutina verri en einkavæðing bankana.

Tussur 101

Færðu ekkert að ríða?

Horfirðu á sama eða næsta kyn sem kjötstykki með gati?

Skælirðu mikið?

Hér er lausnin fyrir þig!

Hættu þessu helvítis væli!

Sumir fá að ríða, aðrir ekki. Ef þú ert feitur og/eða ljótur þá er möguleikinn ansi lítill hjá þér væni minn. En ekki alveg. Notorious BIG og John Candy fengu örugglega nóg að ríða.

Með fokking gríðarlegu magni af monníngum og kóki, eitthvað sem þú hefur ekki (nema þú! Þú veist hver þú ert!), þá fengu þessar fitubollur að ríða meir en þú og ég munu nokkurn tíman gera.

Um leið og þú færð tækifæri til þess, um að gera að njóta þess. En um leið (s.s. frá fyrstu byrjun) og þú ferð að gera of mikið úr jafneðlilegum hlut og að stunda ástarmök - sem gæti mögulega endað í ástarsambandi og nóg af ríð - þá ertu fucked.

Ekki gera drama úr eðlilegum hlut.

Mynda vinatengsl - stinga í gat.

Jóhanna Sigurðardóttir mundir sega slíkt hið sama.

Hlæjandi vitleysingar

Það er fátt pínlegra í þessum heimi en hundleiðinlegt fólk að reyna verið fyndið. Ekki aðeins er það pínlegt heldur er það frekar sorglegt og jaðrar eflaust við einhverskonar brot á lögum, mannréttindalögum þess vegna. Stjórnarskránni. Sjitt, skellum biblí inní þetta líka “Hver sá sem reynir að sprella án þess að eiga innistæðu fyrir því skal grýttur verða þar til hann deyr frá því, svo segir Jóhannes. Jei verilí!”

Það sem skiptir máli

Barack Obama er gagnkynhneigður svartur karlmaður

Jóhanna Sigurðardóttir er samkynhneigð hvít kona

Geir H. Haarde er göndulssjúgandi auðvaldsserðir og ómerkingur

Sjitt maður

Þvílíkt og annað eins pólítískt túrett-heilkenni fékk ég núna á mánudag. Algjört spennufall eftir töluverða kaffidrykkju og nikótíni. Maður tranaði sér bara beint í tittlínga, skaufa og gilda göndla. Hef verið að horfa útum gluggann. Grunsamlegur skortur á umrenningum, bílabrennum og skemmdarverkum. Einhver furðuleg ljós við Stokksnes, gæti verið Sómalskir sjóræningar að ræna ísbjörnum. Hringdi í lögregluna.

Vaknaði klukkan hálfátta í gærmorgun. Lagði mig klukkan eitt eða hálftvö stuttu eftir hádegi. Þegar ég segi lagði mig þá meina ég sofnaði og svaf værum blundi til að verða ellefu um kvöldið. Mikið er afskaplega gott að geta sofið og verið einsog Viggó viðutan. Verð að læra að leggja mig betur. Á eftir að fullkomna það einhvern daginn.

En bara.

Lifi byltinginn.

Vonandi að þetta skipti einhverju máli.

Sjúklega sveittur svefngalsi

Ég er alveg í þann mund að fá boðeindir til að flæða og hugsanlega bindast í þann möguleika einn er varðar að hugsa um þá hugmynd sem gæti orðið að veruleika ef rökin hneigast að íhugun réttmæti þeirrar kenningar um þá ótvíræðuðu festu er fjallar að grunni til um kosti þess að fara leggjast uppí rúm, breiða yfir sig rúmfötin, leggjast á kodda, loka augunum og sofa.

Skaufi.

Sjóðandi heit skilaboð

Ef þú kýst frekar að fá löðursveittann upplestur á þessari gríðarlegu erótík þá skaltu smella á þennan hlekk.

Þegar ég var að strjúka á mér granítstífa tittlínginn fékk ég vægast sagt furðuleg skilaboð í símann minn:

Tu verdur ad hætta ad vera svona klamfengur a blogginu tinu. Mig, saklausa stulkuna, dreymdi tig.

Þetta var greinilega frá einhverri funheitri tussu sem náði að raða saman sjúklega kynæsandi málsgrein sem kveikti í mér áður óþekktum en þó lostafullum kenndum í mínum lendum. Ég greip um tröllvaxna typpið á mér, með löngutöng og vísifingri greip ég rétt um kverkinn á böllnum á mér og nuddaði svo vísifingri í kringum endaþarmsopið þannig að analsafinn byrjaði að seitla. Ég fékk önnur skilaboð:

Allt i takt vid akafann i ter a blogginu. vaknadi vel heit. Nu segi eg upp askriftinni a blogdodd.

Ég var orðinn svo graður að ég réði ekki við mig og fékk smá sáðlát. Smá sæðisblettur skaust á skjáinn en restin lak ljúft yfir hægri hendina og ég fékk unaðshroll frá heita vökvanum á mínu bera holdi. Svo hugsaði ég með sjálfum mér “Sjúddu á mér spöngina tík, sjúddu á mér spöngina! Svo ég geti brundað restinni yfir andlitið á þér!”

Hard Kokk: Óreiða eot.

Óreiða eot. 1993

Ástandið er nákvæmlega einsog í Brazilíu! Fyrir utan eitt smáatriði. Þegar ég vaknaði í morgun, fór á fætur, dró frá og sá að plottið mitt var ekki enn komið á gott skrið varð ég alveg brjálaður! Ég bölvaði vitaskuld, í hljóði svona til að byrja með, enda var töluverður skortur á brynvörðum skriðdrekum og sprengjuregni fyrir utan heimilið mitt og hristi hausinn í vonleysi og hugsaði hart að loknu smá muldri.

Svo arkaði ég að baðherberginu og það gæti líklegast meira en vel verið að ég hefði muldrað ögn meir í lokin á mínum hatursfullu hugsunum. Eitthvað sæmilega saklaust einsog “Ansvítans!” eða álíka og svo hrist hausinn ögn meir. Klórað mér svo á kónginum áður en ég klóra mér á kollinum. Svo burstaði í mér tennurnar, dró fram bjúgað og meig í klósettið.

Þetta var náttúrulega allavega frekar vatnsheld áætlun - hún gæti virkað. Kannski hægt að gata hana hér og þar sosum. En kannski get ég notað hana í eitthvað spennusagnaplott - nema ónefndur rithöfundur hefur lesið þetta og er þegar að því. Það væri efni í annað plott “Þegar spennusagnahöfundurinn stal blogginu mínu!” En maður hefði þó haldið að Hornfirðingar hefði hlaupið út í taumlausu og tilgangslausu æðiskasti þegar stjórnleysi var lýst yfir landinu. Hver á að taka ákvarðanarnir fyrir okkur núna?

Jafnvel eftir eitt það svakalegasta og æðaþrútnasta tittlíngatott einhverja fárveikra aumingja sem sést hefur læv onn æslendik tíví þá eru samt engar brennur á götunum eftir átök milli bolsévíka og hvítliðasveitir íhaldsins. Miðað við hversu mikil froða vall uppúr kjafti Ólafs forseta þá grunar mig að hann haldi að hann hafi fengið að sjúga þann sverasta. Geiri gjeml fékk nú að sjúdda vel á bellinum á henni Imbu Sollu og Imba sjúddaði alla tittlínga sem hún komst í tæri við. En þessi gríðarlegi göndul fær eflaust að ganga og slefið mun ekki slitna milli þá ráða- og þingmanna sem munu sjúdda af áfergju á þessa sveru og svörgulslegu skaufa.

Og ekkert rættist úr þessu ástandi þegar leið tók á daginn. Komið að kveldi og ekkert rætt um að óska eftir norsku þjóðvarðaliðinu til að verja oss frá þessum mótmælendum sem arka um sveitirnar brytjandi og brennandi allt sem á vegi þeirra verður!

Þeir eru að koma!

Óreiða eot. 2008

Æðaþrútnir tittlíngar

Svo fengu þau ekki sjens á að klára mál málana er varðaði sölu bjórs og léttvíns í matvörubúðum! Hvers þarf vors þjóð að gjalda þegar allt stefnir í upplausn, bílabrennur, fjöldanauðganir, runu af fyrirlitlegum ránum og áður óþekkta glæpaöldu er verður einsdæmi í sögu heimsins?!

Fastir liðir einsog venjulega

Ég hef fylgst lítillega með þessum mótmælum undanfarna mánuði og það sem mér finnst vitaskuld einna einkennilegast við þau öll eru viðbrögð stór hluta þingsins og vel allra ráðamanna. Þessar elskur sem vita allt betur en við haga sér líkt og svona hentir á hverju ári. Að þetta sé ekkert nýtt.  Að hægt sé að hunsa þennan hávaða einsog væl í nýfæddu barni: óþolandi en það hlýtur nú að þreytast á þessu fyrr en síðar. Stundum virkar líka einhver róandi orð.

En uppeldisaðferðir núverandi ráðamanna virðast einkennast af kristilegri vandlætingu, þ.e. að spara ekki vöndinn, sýna hver ræður. Skríll, lýður og pakk sem vita ekkert í sinn haus fyrren kemur að lögboðuðum kosningum þá dælist í það vitið. En bara rétt á meðan því stendur. Inná milli eigi að lemja það og berja - svona einsog sumir foreldrar gera við börn og únglínga - spreyja og úða á það - einsog maður gerir við ketti ef maður vill reyna venja það af einhverju - nema hvað að skríllinn er náttúrulega verri en dýr, svo í staðinn fyrir vatn er notaður piparúði.

Hvað um það, einsog allir vita þá eru þetta bara fastir liðir einsog venjulega að hópur Íslendinga af öllum aldri, ólíkum stéttum og ólíkum skoðunum hópast fyrir utan Alþingi í þúsundatali og öskrar “Vanhæf ríkistjórn!” Ekkert nýtt, ekkert spes. Svona hefur þetta verið síðan Ísland var skráð í NATO að almenningi forspurðum árið 1949. Ekki satt?

Hvar eru stuðbyssurnar? Þá er hægt að bæta við einu orði í viðbót við skrílinn, lýðinn og múginn: Hjörð.

Glæsileg vinnubrögð

Gott að vita að á okkar háa Alþingi er raðað upp þingmálum eftir vægi, það sem skiptir þjóðinni mesta máli. Forgangsröðunin er á kristaltæru hjá þessum elskum:

1.       Óundirbúinn fyrirspurnatími.
2.     Vátryggingastarfsemi (heildarlög, EES-reglur) 225. mál, lagafrumvarp viðskiptaráðherra. 1. umræða.
3.     Greiðslur til líffæragjafa (heildarlög) 259. mál, lagafrumvarp félags- og tryggingamálaráðherra. 1. umræða.
4.     Sala áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs) 37. mál, lagafrumvarp SKK. 1. umræða.
5.     Olíugjald og kílómetragjald (endurgreiðsla gjalds) 40. mál, lagafrumvarp HöskÞ. 1. umræða.
6.     Andstaða við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu 49. mál, þingsályktunartillaga SJS. Fyrri umræða.
7.     Tóbaksvarnir (reykherbergi á veitingastöðum) 57. mál, lagafrumvarp JM. 1. umræða.
8.     Stjórnarskipunarlög (bráðabirgðalög, þingseta ráðherra) 58. mál, lagafrumvarp KHG. 1. umræða.
9.     Prófessorsembætti á sviði byggðasafna og byggðafræða 59. mál, þingsályktunartillaga ÁJ. Fyrri umræða.
10.     Skipafriðunarsjóður 60. mál, þingsályktunartillaga MS. Fyrri umræða.
11.     Áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjónustu 66. mál, þingsályktunartillaga ÖJ. Fyrri umræða.
12.     Umferðarlög (forgangsakreinar) 93. mál, lagafrumvarp SVÓ. 1. umræða.
13.     Fjármálafyrirtæki (kynjahlutföll í stjórnum) 111. mál, lagafrumvarp SVÓ. 1. umræða.

Og hvað er svo í gangi þarna fyrir utan þinghúsið? Skilst það séu einhverskonar tónleikar. Gæti ´etta verið Björk?

Leyfið manninum bara að tala

Vegna þess að mótmælahefðin á Íslandi er frekar ung og ansi brothætt þá er ekkert svo skrítið við það að allt nýtt eða óvænt á mótmælum getur orðið frekar farsakennt eða stimplað sem skrílslæti, einfaldlega vegna þess að við erum frekar óvön mótmælum. Annarstaðar - s.s. Grikkland, Lettland, Spánn, Frakkland - væri allt brjálað. Brjálað í þeirri merkingu að það væru ekki mótmæli, heldur óeirðir.

Ég hef aldrei haft mikið álit á honum Ástþóri Magnússyni Wium. Finnst hann vera óttalegur sveimhugi og kjánaprik. Þessi uppákoma hans á mótmælunum á Austurvelli í gær var - að mínu mati og mati margra - gríðarlega asnalegt og frekar vanhugsað. Er þetta hvítliðasveitin sem allir hafa beðið eftir? Er maðurinn að reyna hleypa upp mótmælunum? Er hann að reyna stofna til óeirða? Hvað gengur að þessum manni?

Það sem virðist víst ganga að þessum manni er að hann hefur ekki fengið að tjá sig á ræðupúltinu. Hann og aðrir hafa ásakað skipuleggjanda mótmælana - homminn Hörður - um einræðistilburði, að hann velji þá sem hann fílar í rassgat og hafni þeim sem hann fílar ekki í rassgat. Væntanlega er slatti af fólki sem hefur óskað eftir því að fá að tjá sig og það komast færri að en vilja. Það er hugsanlega hægt að líkja þessu við aðsendar greinar í Moggann.

En mér finnst að Raddir fólksins ættu að svara þessum ásökunum hans í garð Hörðs Torfa um einræðistilburði og einnig svara þessari aðgerð hans með afar einföldum og skýrum hætti á næsta fundi:

Hleypið manninum uppá svið og leyfið honum að tjá sig. Það er ekkert víst að fólk heyri hvað hann segir sökum þess að sama fólkið mun baula og búa á hann. En látið hann gaspra útí hið óendanlega þar til einhver í þvögunni tekur hann úr sambandi við dúndrandi lófatak áhorfenda. Kannski þá mun hann átta sig á því hvað hann hefur verið mikill kjáni og jafnvel gerir sér grein fyrir því að þolinmæði gagnvart svona fíflagangi líðst ekki.

En ég er nokkuð viss að þetta væri einn sterkasti leikur sem Raddir fólksins geti gert varðandi þennan tiltekna farsa.

Laklegur og lýðskur líftími

Tónlistin dunaði frá sunnudegi til laugardags allan ársins hring og fólk tók oft trylltan dans á dansgólfinu eftir töluverða neyslu á ýmsum mishættulegum vímugjöfum. Partíið var óstöðvandi. Kallarnir á toppnum sugu í sig kókaín áhyggjulausir og riðluðust á smástelpum við hvert tækifæri. En sökum óhóflegrar neyslu á vafasömum vímuefnum eigenda og gesta, jafnvel þó sala áfengis minnkaði aldrei, þvert á móti, þá fór staðurinn samt á hausinn á örfáum árum sökum gríðarlegra skulda.

Svona hljómar ein útgáfa - í minni útgáfu - af einni vinsælustu samlíkingu varðandi fjármálakreppu á landinu. Stanslaust partí þar til peningarnar fuðra upp og fólkið sem ekki kom nálægt þessu þarf að hreinsa upp skítinn. Og er það furða? Þetta er rúmlega líftími skemmtistaða á borð við Kaffi Thomsen - og efalaust 2. hvern skemmtistað á landinu. Ég er nokkuð viss að meðalaldur sæmilega vinsæla skemmtistaða sé um fjögur til sex ár. Skemmtistaðurinn Ísland er nú búinn að vera sæmilega vinsæll, en þetta er bara lögmál hins sér-íslenska skemmtistaðahagfræði -  vísindalega sannað - óumflýjanlegt.

Það sem þarf til að redda þessari kreppu er heimstyrjöld!

Við Íslendingar hljótum að getað hrundið því af stað. Nýta sér þennan fréttayl af hryðjuverkalögunum sem voru sett á Landsbankann og Glitni í fyrra og hefja gríðarlega opinskátt og vel auglýst samstarf við Sádi-Araba og Íran. Leka því svo til erlendra fréttavefveita um að hópur íslendinga eru viðriðnir hryðjuverkahópum í mið-Austurlöndum - einhverskonar “War (against terrorists) Profiteering” (stríð(gegnhryðjuvekum)gróði) og reyna fá einhverja anonymous chan-flippara á netinu til að mótmæla fyrir utan sendiráð Íslands útum allan heim og heimta að Bandarísk og Bresk yfirvöld lýsi yfir stríði á þessa norrænu hryðjuverkavíkinga. Nordic Terro-Vikings (NTV) er meira segja gott nafn á fyrirtækinu sem er að stunda viðskipti við Sádi-Arabíska og Íranska viðskiptamógúla. En það sem má ekki koma fram í fréttum er að þessir aðilar eru eingöngu að versla vatn frá Íslandi.

Með valdi internetsins skal reynt að ýta á eftir einhverjum aðgerðum gagnvart Kúbu norðursins sem vonandi endar með því að landið verði hertekið. Þá fyrst getum við stundað aftur stríðsgróða líkt og við gerðum á tímum fyrri og seinni heimstyrjaldar og fram að Íraksstríðinu.

Sá svo nokkrum fræjum í Austurlöndum nær að það var Ísrael sem ýtti á eftir þessari ákvörðun. Íran og Sádi-Arabía telja  stjórnmála- og viðskiptahagsmunum sínum - þó smávægileg séu - stofnað í hættu útaf þessum þrýstingi Ísraels. Sádi-Arabía slítur öllu stjórnmálasamstarfi við vesturveldin og byrja einbeita sér að Kína, Rússlandi og Austur-Evrópu. Íran nær að sannfæra yfirvöld í Sýrlandi og Jórdaníu til að hefja hernaðaraðgerðir gegn Ísrael. Þau ráðast inn að suðri. Fljótt dregst Ameríski herinn í Írak inní málið en fá ekki leyfi til að fljúga yfir flughelgi Sádi-Arabíu og þurfa því að stytta sér leið yfir Tyrklands. En Sádi-Arabar ásaka Bandaríkin um að brjóta flughelgi - ein bandarísk flaug er skotinn niður. Lýst er yfir stríði á þessu eyðimerkursvæði í austri í kjölfar á því að Ísraelski herinn sprengir visst skotmark í Íran - ekki sakar að það væri skóli - helst grunnskóli.

Kína veitir liðstyrk fyrir Araba-herinn. Rússland líka. Bandaríski og Breski herinn koma full force og þessi átök í mið-Austurlöndum munu einræðisherrar í Afríkuríkjunum nota til að skara eld að enn meira ófriðarbáli í álfunni. Þjóðarhreinsanir hefjast á ný í austur-Evrópu þar sem einblínt verður á mismunandi trúarhópa. Meðan er vestur-Evrópa í þeirri stöðu sem BNA voru í byrjun 20. aldar. Neita að taka þátt (nema Bretland auðvitað). Svo virðist allt vera í blússandi í gúddí en vænissýkin byrjuð að kræla á sér í formi einkennilegra laga og vafasama yfirlýsinga ráðamanna. Sameinuðu þjóðirnar verða leystar upp. Svo dregst skandinavíski herinn í smá átök við Rússana. Frakkar, Þjóðverjar, Spánn, Ítalía og Pólland fara að hafa verulegar áhyggjur af þjóðarhreinsunum í álfunni.

Þá erum við að tala um fokking heimstyrjöld! Við erum líka að tala um að ein lítil þúfa velti þungu hlassi.

Áfram Ísland!

Við getum þetta!

Ögn meira blaður um kannabis

Í mínu eilitla blaðri um kannabis síðasta ágúst þá ýjaði ég að því að opinber umræða um vímuefni kemur í bylgjum á nokkra ára fresti og, viti menn, hún er hafin á ný. Það hefur verið rætt um ræningja á Suðurlandi sem hafa rænt gróðurhúslömpum og auðvitað aukinni ræktun á maríjúana - og eina fólkið sem er rætt við útaf þessu “vaxandi vandamáli” er og verður nær eingöngu lögreglan og Þórarinn Tyrfingsson.

Ég hefði nú haldið að það væri gefins að framleiðsla á vímuefnum á Íslandi mundi aukast í kjölfarið á kreppunni - það er ódýrara en að smygla.

Á fréttavef RÚV má finna frétt frá 12. janúar með fyrirsögninni “Börn halda að kannabis sé hollt” þar sem segir meðal annars:

Mun fleiri unglingar reykja maríjúana en áður. [...] Þeir virðast margir telja að maríjúana sé hættulaust og í sumum tilvikum beinlínis heilsusamlegt.

Þetta eigi við um unglinga frá 14 ára aldri. [...]  Foreldrar eigi í mörgum tilvikum erfitt með að rökræða við börn sín um málið þar sem þau hafi þegar viðað að sér upplýsingum sem séu rangar.

Hæglega er hægt að gantast með það að það séu foreldrarnir sem hafa viðað að sér röngum upplýsingum, en vitaskuld er átt við börnin (eða unglingana, eða hvað sem þetta kallast nú til dags). En það er þó auðveldlega hægt að draga þá ályktun að báðir hóparnir hafa viðað að sér misvísandi upplýsingum frekar en rangar.

Það er náttúrulega ekkert sniðugt að 14 ára unglingar séu að blitzkríga á sér boðefnin með kannabis, því kannabis hefur töluverð áhrif á hinn sálræna faktor á óhörðnuðum únglíngum - vænissýki og ranghugmyndir er mjög algengt eftir neyslu á kannabis - öllu heldur meðan á vímu stendur, en það er ekkert sem góður svefn getur ekki læknað. En fyrir utan það þá er samt sem áður viss hætta til staðars að neysla geti ýtt undir einhverjar minni- eða meiriháttar geðveilur - en það er nú aðeins ef neysla þess er í óhófi. Það gildir það nákvæmlega sama um kannabis og hinn löglega vímugjafa sem er áfengi. Hóf er best í öllu.

En það er heldur ekki sniðugt að halda að fólki vitlausum upplýsingum - og þá á ég við völdum upplýsingum sem aðeins einblína á ókostina - hvorki að börnum foreldrum. Hættulaust er þetta ekki - en hægt er að draga úr hættunni ef þú gerir þér fulla grein fyrir áhrifum vímugjafans og neyslu þess. Heilsusamlegt ekki heldur - ekki frekar en sum verkjalyf (þá á ég við virknina, en ekki tóbakið sem flestir neytendur blanda útí).

Einnig er sú hætta hjá fullorðnu fólki að mikla þetta í staðinn fyrir að draga úr þessu á einhvern hátt. Það getur bara skapað frekari vandamál á heimilinu og gæti þess vegna gert afkvæmið fráhverft foreldrum sínum.  Í staðinn fyrir hysteríu þá væri máske sniðugt að reyna taka á þessu með stóískri ró - reyna ná einhverjum sáttum. Krakkar á þessum aldri eru náttúrulega algjörar hormónabombur og það sem er sagt við þau og hvernig það er orðað getur skipt alveg gríðarlega miklu máli. En ég er enginn uppeldissérfræðingur með kennararéttindi og fjórar háskólagráður í viðbót. Ég var bara einu sinni únglíngur.

Ég tel það bara vera frekar skynsamlegt af foreldrum að kynna sér það sem krakkarnir halda fram - hlusta á það sem þau hafa að segja, biðja um rökstuðning og hvar hægt sé að nálgast þessar upplýsingar, og kannski sakar ekki að vera frekar áhugasamt um umræðuefnið og jafnvel ýja að því geta vel hugsað sér að prófa þetta. Líkur eru nefnilega á því að þær upplýsingar sem þau hafa viðað að sér eru ekkert endilega rangar, heldur eru þær nákvæmlega eins valdar og hjá forvarnarstarfseminni. Munurinn er bara sá að þau einblína eingöngu á kostina.

Það eru nefnilega óneitanlega kostir og ókostir við kannabis sama hvað foreldrarnir segja og sama hvað unglingarnir halda fram. Helsta vandamálið við umræðuna um kannabis (og önnur vímuefni) er hysterían - á báða bóga - sem afmyndar upplýsingarnar.

Enn og aftur þá óska ég og bíð spenntur eftir yfirvegaðri umræðu sem gæti leitt til þess að prófaðar yrðu aðrar leiðir en bann - áfengisbannið virkaði ekki hér eða í Bandaríkjunum á 2. og 3. tug síðustu aldar og sömuleiðs hefur fíkniefnabannið heldur ekkert að virkað. Það verður bara að huga að öðrum leiðum.

Fellsendi

Haustið 2003 flutti ég aftur heim til Hornafjarðar, en ég hafði þá búið í Reykjavík í rúm þrjú ár (þar áður á Flateyri í þrjá mánuði, þar áður á Hornafirði í rúmt ár og þar áður í Reykjavík í rúm tvö ár og þar áður á Hornafirði frá fæðingu).

Þegar ég flutti hingað fyrir rúmu fimm og hálfu ári síðan í foreldrahús þá átti það að vera tímabundið og nú er þessi tímabundni flutningur á enda og ég er að fara flytja eina ferðina enn. Til Fellsenda við Búðardal, en þar er dvalarheimili fyrir aldraða og geðsjúka. Þar mun ég hefja störf þann 9. febrúar, hversu lengi ég verð þar fer eftir því hvernig mér líkar viðveran og vinnan, en ég er ekki annað en bjartsýnn og vongóður gagnvart þessu starfi.

Þetta verður ævintýri.

Fullur af skít

Er ekki frá því að ég hafi kúkað allavega þrisvar sinnum í fyrradag, tvisvar í gær og svo einn gríðarlegur lortur í dag. Auk þess finnst mér einsog ég þurfi bara alltaf að hreinsa úr endaþarminum þessa dagana. Eru þetta afleiðingar af jólunum, kreppunni eða atvinnuleysinu? Eða máske allt þrennt?

Úff, svo er ég alveg handviss um það að ég þurfi að skíta á morgun líka. Vonandi að það verði bara eitt skein, það sparar klósettpappír sem er náttúrulega frábært á þessum síðustu og verstu tímum. Að þurfa nota hálfa klósettrúllu til að hreinsa á sér rassgatið er bara alveg ótækt og óumhverfisvænt - rúmlega tvö kíló af verkaðri furu sem fer yfir endaþarmsopið á manni? Ussususs. Ég hlýt að hata náttúruna.

Ekki sé minnst á þetta tímabil mitt sem ég pissaði með rassinum nær daglega í fjóra daga. Ja, pissaði kakó og kókópöffs.

Ekki var það nú gaman.

Seisei, nei.

Og allur þessi aftanvindur. Sjitt.

Þessi færsla er tileinkuð fecalphiliana á landinu - eða saurriðlana.

Farið nú og fróið ykkur.

Nafnleynd

Fyrir tregt fólk er þetta kannski einhver nýr sannleikur, en við erum smáþjóð. Samkvæmt tölum Hagstofunnar erum við ekki nema rétt yfir þrjúhundruðþúsund talsins sem búum á þessu skeri. Já, kannski eiga fávitar bágt með að trúa þessu, en þetta er satt. Kannski er þetta ótrúlegt fyrir aðila með múrstein milli eyrnana.

Útaf þessari smæð þá eru sumir smeykir að koma fram undir nafni. Allir þekkja alla, einsog sagt er. En einsog bersýnilega hefur komið fram á undanförnum dögum - sumir vilja þekkja alla. Af hverju? Er ekki viss, en er með einhverjar hugmyndir. Kannski meira um það síðar - en ég er ekki að tala um lögregluna.

Það er magnað að lesa greinar eftir erlenda blaðamenn sem hafa ferðast hér um landið og lofa í hástert hvað við erum vel lesin og yfirhöfuð gáfuð þjóð. Þetta er skemmtilegt þjóðaregórúnk. Sérstaklega þegar innlendir fjölmiðlar vísa í þessi erlendu skrif. En því miður þá fá sumir bona fide bjánar þá flugu í höfuðið að þeir eru ekki bjánar heldur gáfumenni fyrst að einhver útlendingur sagði það. Sem er náttúrulega alrangt.

Sumir hafa kannski ekki tekið eftir því en það er víst töluverð óánægja í landanum núna. Ég er kannski draga smá úr því með því að nota orðið “töluvert” því einsog flest allir vita þá er bullandi sjóðheit og kraumandi fokking brjálæði í þjóðinni núna.

Nú tek ég mér bessaleyfi og alhæfi með því að segja að við erum, á heildina litið, ansi róleg og yfirveguð þjóð. Reiðin brýst oftast út eftir nokkrar bokkur af bjór og brennivíni. Það að fólk hópist saman um helgar - jafnvel í vinnuviku - um miðjan dag og er verulega reitt er bara eitthvað sem gerist mjög, mjög sjaldan.

Fólk er ekkert reitt útaf því bara. Þetta er ekki eitthvað sem fólk hefur verið að byrgja sig upp í mörg ár bara til að það brjótist út einhverntíman seinna, t.d. eftir að einhverjir glæpamenn og óþjóðalýður náði að gera þjóðina gjaldþrota á rétt rúmlega sex árum. Þetta er ekki einhver lunda sem fær þetta birtingarform á hálfsaldar fresti. Fólk er verulega pissed off útaf því að einhverjir glæpamenn og óþjóðalýður náði að gera þjóðina gjaldþrota á rétt rúmlega sex árum.

En það sem kemur mér og mörgum á óvart er þessi fyrirsláttur að vita hverjir eru svona agalega ósáttir. Fyrirsláttur því það skiptir engu andskotans máli.

Í staðinn fyrir að reyna nafngreina fólk sem ber grímur, sjal eða trefla fyrir andlit sitt við mótmæli og borgaralega óhlýðni, hví ekki að gera fokking Gallup-könnun til að komast að því hversu stór hluti þjóðarinnar er gríðarlega fokking reitt gagnvart því að fjárhaglsegt öryggi þeirra hefur verið kippt undan því á einu bretti?

Fólk sem almennt treysti því - þrátt fyrir misvitra þingmenn og ráðherra - að peningarnir þeirra væri í öruggum höndum.

Eða á kannski að fara setja peningaverðlaun fyrir þá sem upplýsa hverjir bera hulu yfir andlit sitt við þessar aðgerðir, svona líkt og Fréttablaðið gerði gagnvart Mengellu í hitteðfyrra?

Grow up.

Að fjölmiðlar skuli dirfast að haga sér einsog… tja, háður og ófrjáls fjölmiðill.

Rottweilerhundar auðvaldsins.

Nafnleynd almennings skiptir ekki rassgats máli, það sem skiptir rassgats máli eru þessi glæpamenn og óþjóðalýður sem náði að gera þjóðina gjaldþrota á rétt rúmlega sex árum. Hverjir eru það? Það sem við þurfum eru fokking sökudólgar sem eiga virkilega þátt í því að það er bullandi sjóðheit og kraumandi fokking brjálæði í þjóðinni núna.

Það er það sem skiptir máli, helvítin ykkar.