Skip to content

Besta svindl ever

Ég hef uppgötvað áður týndri ást minni á tölvuleikjum. Man einsog það gerðist fyrir rúmi ári síðan - sem það og gerðist - að ég hreinlega hætti að spila tölvuleiki. En ástæðan var nú obboslega einföld. Ég var þá tiltörulega nýorðinn ritstjóri vefritsins Vantrú og það tók töluverðan tíma frá tölvuleikjaspilun. Sem var nú bara fínt.

Stöku sinnum, þó, þá lék ég mér í einum og einum leik svona ef áhugi og tími gafst. Svo náttúrulega kom að því er ég hafði komið mér upp ágætri rútínu í hinu áhugaverða, gefandi, sæmilega tímafreku og launalausu aukadjobbi að ég gat gefið mér meiri tíma fyrir internetið og aukna tölvuleikjaspilun.

Nú í vikunni kom bara að apexi tölvuleikjaspilunnar er starfsfélagi minn benti mér á svindl í hinum öldungis klassíska tölvuleik er heitir Minesweeper.

Sjálfur svindla ég örsjaldan í tölvuleikjum, einfaldlega útaf því mér finnst það bara svo mikið, tja, svindl að svindla í tölvuleikjum. Maður þarf að vera heldur frústreraður og ösku-andskotans-illur til að freistast til þess að gúggla eitthvað svindl. Í sannleika sagt þá legg ég fæð á svindl í tölvuleikjum. Ef maður þarf að svindla í tölvuleikjum þá hafa hönnuðirnir og einnig tölvuleikjatestararnir ekki staðið sig í stykkinu.

Til að mynda er einn alveg hreint stórkostlega óþolandi galli í þó frekar vel heppnuðum leik sem er í fjórðu útgáfunni af Grand Theft Auto. En gallinn er á þá leið að þegar þú klárar eitthvað verkefni sem felst í að myrða, deyða, drepa og það eru annaðhvort örfáir vondir kallar eftir með byssur og/eða löggan mætt á svæðið með byssur og byrjað er að drita á þig með áðurnefndum frethólkum þá finnur Nico Bellic - aðalsöguhetjan - sig knúinn til að hringja í einhvern til að láta vita af því að hann hefur klárað verkefnið meðan byssukúlurnar fljúga í búkinn á honum. Þetta getur endað með dauða. En blessunarlega þarf maður ekkert að svindla í þessum mæta tölvuleik þrátt fyrir þennan meinlega galla. Nema maður sé ræfill og lúser. Sem ég er ekki.

Dæmi um hönnunargalla í tölvuleikjum sem maður neyðist hreinlega til að svindla í er t.d. í endanum á leik er heitir Call of Cthulu: Dark Corners of the Earth. Þar kemur sínematískt móment - af ansi mörgum, en ég mæli eindregið með þessum leik uppá atmóið og gríðarlega flottum sínematískum mómentum - sem fólst í því að hlaupa hratt í gegnum göng áður en þau mundu hrynja á mann. Trikkið átti að vera tímasetning og hraði. Sama hversu oft ég reyndi þá drapst ég alltaf, það oft að mig grunaði að hér væri á ferðinni bíræfilslegur galli í leiknum. Viti menn, eftir smá gúggl þá voru ansi margir að lenda í sama vandamáli. Svo ég gúgglaði ögn eftir svindli,  þ.e. godmode og að labba í gegnum veggi og svindlaði til að klára þetta dæmi.

Mér fannst ég svo skítugur eftir þessa ósvinnu. Ég hafði gjörsamlega misþyrmt einni höfuðsynd tölvuleikjaspilunar. Svindl! Ég kreisti fram eitt krabbameinslæknandi tári sem ég þerraði af kinninni með pappírsbréfi og henti því svo í eldsofninn.
 
En að hinu goðsagnakennda svindli í Minesweeper. Ýtið á eftirfarandi hnappa í þessari röð: W Z Z Y. Efst í vinstra horninu í bakgrunninum (s.s. fyrir ofan My Documents, My Computer eða hvað sem þið óbermin hafið eða hafið ekki þarna) á að birtist punktur sem er heill pixel að stærð. Svo skal halda CTRL-hnappnum inni og láta músabendilinn reika yfir kassalöguðu hnappana í Minesweeper. Ef litli pixellinn er hvítur er engin jarðsprengja og ef punkturinn er svartur þá er hætta á ferð. Efast ekki um að Minesweeper-aðdáendur eiga eftir að froðufella af fullnægingu við þessar lostafullu upplýsingar.

2 Comments

  1. Haf wrote:

    Yessss, rústaði Minesweeper. Þetta er samfélagsþjónusta sem þörf var á.

    Langar þig ekkert að fjalla um peningasóunina sem í gangi er núna, i.e. að nota þyrlur Landhelgisgæslunnar (sem líður víst fjárskort, eins og önnur löggæsla í landinu) til að finna kannabisverksmiðjur um land allt?

    laugardagur, mars 28, 2009 at 21:05 | Permalink
  2. Ég hef verið að velta vöngum yfir þessari gríðareglu sóun á fjármunum sem felst í því að uppræta þessar gróðurstöðvar. Þ.e. fjármagnið sem fer í að uppræta vs fjármagnið sem mundi skila sér í þjóðarbúskapinn ef þetta væri nú bara löglegt vs ef þessi búgrein væri bara umborin af yfirvöldum.

    sunnudagur, mars 29, 2009 at 10:21 | Permalink

Post a Comment

Your email is never published nor shared. Required fields are marked *
*
*