Íslenski draumurinn varð að veruleika og okkar eigið efnahagsundur brotlenti og fuðraði upp líkt og flug 92. Sumir segja að þetta þurfti að gerast til að opna augun hjá sumu fólki, s.s. ruddaleg ábending um að græðgi er ekki alltaf góð.
Já, að vissu leyti er ég sammála þessu. Þetta var kannski nauðsynlegt, rétt einsog það er nauðsynlegt að gefa tugmilljónaofurlaunakónunum og vonnabí-heimsauðkýfiningum duglegt spark í böllinn til að leyfa þeim að finna hverskonar líffræðilegan óskapnað það getur orsakað.
One Comment
Heyr, heyr.
Post a Comment