Fór í sturtu um daginn, sem er nú varla frásögu færandi, nema að þegar ég var að strjúka á mér mallakútinn með löðri fann ég fyrir smávægilegum en þó óþægilegum sársauka. Ég strauk á mér magann og leit niður. Og sjá! Rúmlega sentimeter fyrir neðan naflann, nákvæmlega í miðri sportröndinni, var bóla. Maður hefur fengið bólur á sæmilega furðulegum stöðum - á rassinum, lærinu, kálfanum, bakvið eyrað, á bakinu - en þessi bóla sló þeim viðbjóði öllum við. Það var akkúrat á þessu tiltekna augnabliki sem ég óskaði þess að ég hefði átt myndavél.
Barbarinn sem býr á sama gangi og ég keypti handlóð fyrir stuttu síðan. Ég hef nú ekki staðist freistinguna til að taka aðeins í lóðin og massa mig upp milli þess sem ég spila tölvuleiki, glápi á vídjó, vinn, sef og skít. Jú, er einnig að munda pennan til að teikna.
Ætlaði á Papana á Jörvagleði hér í Búðardal. Drakk svo mikið að ég svaf yfir mig. Kannski ekkert svo mikill missir hvorteðer.
Það er alveg merkilega mikið af glæpsamlegum amatörum í undirheimum Íslands ef marka má fréttir undanfarna mánuði. En botninn tók úr núna um helgina með þessum gárungum sem hugðust skella sér “að kafa” í Kongó.
“Sælt veri vitlausa sveitafólkið, við erum nokkrir ókunnugir einstaklingar og gáfumenni sem ætlum að kafa hér í sjónum án nokkurs búnað til þess arna nema þennan forláta gúmmíbát! Er hann ekki flottur?! Við erum nefnilega gáfumenni sjáið nú til.”
“Mmmhmmmm… jájá. Jahá. Hérna. Þið gerið það bara skuggalegu og afskaplega ókunnugu strákar þið, á meðan hringjum við eitt símtal, ókei?”
“Hjöökkk… djöbudll eru ðessih sveitafóhk viddlauh!”
Samkvæmt einhverskonar tölfræði og útreikningum og vísindum sem er varla venjulegum manni skiljanleg þá búa rúmlega 3 einstaklingar per ferkílómeter á landinu. Það eru sirka 100 kílómetrar á milli Djúpavogs og Hafnar. Á þessum vegaspotta eru nokkrir sveitabæjir og sumarhús og ef litið er til hægri þegar keyrt er frá Hornafirði þá er hægt að sjá sirka rúmlega gríðarlega langa strandlengju þar sem - bíðið nú hægir, þetta er uppljóstrun frá Austfirðingi - engin býr! Og fyrst þessir þrollar gátu fengið geggjaðan gúmmíbát á leigu eða að láni, hvað með tussutöff jeppa eða tvo og tjekka á Eystra- og Vestrahorn?
Nú vantar bara feil-meil alá Bjarna Harðar frá Birni Bjarnasyni, fyrrum dóms- og fávitamálaráðherra, til allra helstu fjölmiðla, sem væri líklegast einhvernveginn á þessa leið:
Flottur Illugi! Þetta var þokkalega gott og þarft múv. Fokking fíflið fokkar ekki í Bjössa án þess að fá á sig skítinn beint í fésið aftur. Bless, bless stjórnmálaferill Guðlaugs Þórs. LOL.
Kv.
-BB
Það er töluverður slatti af fólki sem fílar að láta sprauta uppí rassinn á sér og sumt af þessu fólki er fólk sem á annað borð amast útí hommana sem serða og sprauta brundi uppí hvors annars rassa. Við erum að tala m.a. um Árna Johnsen og Gunnar í Krossinum sem eru eflaust með þá granítstífa meðan einhver ljóshærð og veruleikafirrt gömul beygla dælir kakóið úr kakóinu á þeim.
Svo þykjumst við vera sjokkeruð á hegðun Guðmunds lilleman sem fílar að láta smá stuð í geirvörturnar á sér og klípa í typpalinginn sinn. Ég er eiginlega byrjaður að sjá þá kumpána - Árna og Gunnar - sitjandi klofvega yfir hvor öðrum, pissandi á andlitið hvors til skiptis með rassgatinu. Flott ef það myndband mundi nú leka á netið.