Amatörar undirheima
Það er alveg merkilega mikið af glæpsamlegum amatörum í undirheimum Íslands ef marka má fréttir undanfarna mánuði. En botninn tók úr núna um helgina með þessum gárungum sem hugðust skella sér “að kafa” í Kongó.
“Sælt veri vitlausa sveitafólkið, við erum nokkrir ókunnugir einstaklingar og gáfumenni sem ætlum að kafa hér í sjónum án nokkurs búnað til þess arna nema þennan forláta gúmmíbát! Er hann ekki flottur?! Við erum nefnilega gáfumenni sjáið nú til.”
“Mmmhmmmm… jájá. Jahá. Hérna. Þið gerið það bara skuggalegu og afskaplega ókunnugu strákar þið, á meðan hringjum við eitt símtal, ókei?”
“Hjöökkk… djöbudll eru ðessih sveitafóhk viddlauh!”
Samkvæmt einhverskonar tölfræði og útreikningum og vísindum sem er varla venjulegum manni skiljanleg þá búa rúmlega 3 einstaklingar per ferkílómeter á landinu. Það eru sirka 100 kílómetrar á milli Djúpavogs og Hafnar. Á þessum vegaspotta eru nokkrir sveitabæjir og sumarhús og ef litið er til hægri þegar keyrt er frá Hornafirði þá er hægt að sjá sirka rúmlega gríðarlega langa strandlengju þar sem - bíðið nú hægir, þetta er uppljóstrun frá Austfirðingi - engin býr! Og fyrst þessir þrollar gátu fengið geggjaðan gúmmíbát á leigu eða að láni, hvað með tussutöff jeppa eða tvo og tjekka á Eystra- og Vestrahorn?
Matti skrifaði:
Hvað með að gera þetta í samstarfi við trillukarl, dömpa draslinu í sjóinn og sækja það svo viku seinna á trillu.
Skrifað þann 20-apr-09 klukkan 6:09 eh. | Fastan hlekk