Rykkorn #897

Fór í sturtu um daginn, sem er nú varla frásögu færandi, nema að þegar ég var að strjúka á mér mallakútinn með löðri fann ég fyrir smávægilegum en þó óþægilegum sársauka. Ég strauk á mér magann og leit niður. Og sjá! Rúmlega sentimeter fyrir neðan naflann, nákvæmlega í miðri sportröndinni, var bóla. Maður hefur fengið bólur á sæmilega furðulegum stöðum - á rassinum, lærinu, kálfanum, bakvið eyrað, á bakinu - en þessi bóla sló þeim viðbjóði öllum við. Það var akkúrat á þessu tiltekna augnabliki sem ég óskaði þess að ég hefði átt myndavél.

Barbarinn sem býr á sama gangi og ég keypti handlóð fyrir stuttu síðan. Ég hef nú ekki staðist freistinguna til að taka aðeins í lóðin og massa mig upp milli þess sem ég spila tölvuleiki, glápi á vídjó, vinn, sef og skít. Jú, er einnig að munda pennan til að teikna.

Ætlaði á Papana á Jörvagleði hér í Búðardal. Drakk svo mikið að ég svaf yfir mig. Kannski ekkert svo mikill missir hvorteðer.

Ein athugasemd left to “Rykkorn #897”

  1. Óskar P. Einarsson skrifaði:

    Mikið rosalega sé ég þennan stað sem þú ert á fyrir mér sem Hótel Bjarkarlund í Dagvaktinni.

Skrifaðu athugasemd

*Required
*Required (Never published)