Jóhanna Sigurðardóttir: Kyntákn Íslands

að er hugsanlegt að eftirfarandi þjóðfélagslegt innlegg sé ekki fyrir viðkvæma svo ég vill bara nota tækifærið og biðjast velvirðingar á hugsanlegri kvenfyrirlitningu er sumir kunni að greina í eftirfarandi færslu og vonandi særi ég [eða nokkur annar er kynni að gera athugasemdir] ekki neinar tilfinningar á annan hátt, ef svo er, þá biðst ég bara innilegar afsökunar]

Ég er kannski svona agalega seinn á eftir en ég vona þó samt að þessi frétt hafi nú ekki farið framhjá neinum, en er það virkilega svo að  47. af flöttustu tussunum sem eru í reður hárri valdastöðu og líklegast verið kvenna lengst á valdatúri sem forsætisráðfrú á Íslandi og er fokking esbía í þokkabót? Ekki slææææmt mar!!!

Þessi óvéfengjalega staðreynd gæti reynst ágætis grundvöllur fyrir íslenzku internet-meme. Svoleiðis getur allt byrjað með saklausu flippi:

Sem getur stundum farið útí sprell:

Hugarfarsleiðrétting

Það er alveg mögnuð þessi lunda í fólki sem þykist vera alveg gríðarlega pjé sjé að sjá alltaf neikvætt, ærumeiðandi og móðgandi við allskonar fokking orðalag, sem öðru venjulegu fólki þykir ekkert tiltökumál. Þetta er til dæmis mjög algengt hjá skíthausum sem amast útí málflutning feminista eða trúleysingja.

Svoleiðis fólk geta verið alveg gríðarlegir bavíanar í sumum umræðum. Hvað í ósköpunum er til dæmis hræðilegt við orðið “leiðrétting”? Þessi pæling - svo ég noti neikvætt og lýsandi orð yfir þessu hátterni - er með eindæmum heimskuleg að það nær ekki nokkurri átt og er einfaldlega skýrt dæmi um að þrollast á netinu.

Hvaða andskotans orð er hægt að nota í staðinn? Svona, í fúlustu alvöru? Á að nota orðið “breyting”? Eða “íhugun”? Hvað með “lífsskoðunarendurathugun”?

Nei, svona fyrirsláttur og aumkunarverður orðhengilsháttur er bara rugl og fólk sem heldur þessu fram eru fávitar og geta fokkað sér.

Annars mæli ég með grein dagsins á Vantrú: Þúsundasta trúfélagsleiðréttingin - það sem mér finnst einna merkilegast er að af þúsund einstaklingum sem hafa leiðrétt sína trúfélagsskráningu þá hafa einungis tveir skráð sig í ríkiskirkjuna, en mig minnir nú að það hafi verið guðfræðingar að hæðast að þessu átaki.

JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR: HRYÐJUVERK Í TUSSUNNI Á MÉR!!!1!!1111

Kommon þarna litla esbían þín, misstu það útúr þér. Kallaðu mótmæli hryðjuverk. Gerðu það! Plíííís!

Svo geturðu túlkað innflytjendur sem araba og þá ertu á réttri leið. Í rauninni bara á beinni leið. Einsog allir vita þá eru allir hryðjuverkamenn arabar en allir arabar eru ekki hryðjuverkamenn. Gakktu svo bara rakleiðis í Sjálfstæðisflokkinn - ef það er búið að kvikna á perunni - og taktu Steingrím með þér. Þið eruð allavega á þeirri braut þið afvegaleiddu, tækifærissinnuðu popúlistar. Aumingjar jafnvel og skræfur, heiglar, ræflar, skíthausar, dusil- og ómenni.

Megið þið lengi lifa, líkt og Davíð Oddson, Geir H. Haarde, Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrímur Hermannsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Björgólfsfeðgar, Werner- og Bakkabræður, bankateymið einsog það leggur sig og allir hinir siðblindu heimskingjarnir sem komu okkur beint og óbeint í þennan fúla forapytt, sér til ævivarandi skít, skömm og athlægi.

Ég segi bara einsog ömmur útum allt land: Skammist ykkar og snáfiði burt!

Guð blessi Ísland er drasl

Fór á heimildarmyndina Guð blessi Ísland í kvöld og það verður bara að segjast að sem heimildarmynd þá er hún óttalegt drasl. Fyrir utan myndatöku, klippingu og afskaplega dramatíska tónlist, þá virðist vanta nánast allt í hana; dagsetningar, staðsetningar, upplýsingar, útskýringar og nöfn á viðmælendum.

Hvernig í andskotanum á þessi mynd að útskýra fyrir erlendum áhorfendum þá atburði sem áttu sér stað hér fyrir ári síðan? Sem upprifjun á atburðum er leiddu til stjórnarslita með þrúgandi tónlist frá Hilmi Erni Hilmarssyni, sem slík, er hún “ágæt”. Það er ef þú ert borin og barnfæddur hér og fylgdist með gangi mála.

Það var einsog myndin væri bara alltaf að byrja og virkaði einsog fyrsta uppkast, versjon 0.47 af heimildarmynd um kreppuna. Ekkert nýtt kom fram í henni sem maður vissi ekki þegar og maður fékk að sjá inní heimili hjá mótmælendunum Sturlu og Evu, auk þess að vita að sonur hans Geir Jóns er voða trúaður og góður löggukjeelll. Eina fólkið sem sagði eitthvað sæmilega af viti voru sjóarnir sem voru að gera við netin.

Bjarni, Jón Ásgeir, Björgólfur Thor og Geir sögðu nákvæmlega ekkert sem var eitthvað gríðarlega upplýsandi og þessar áhyggjur þeirra - allavega Jóns - að hafa sagt eitthvað sem viðkomandi vildi ekki sagt hafa hefði bara getað komið frá fólki sem var eflaust drullufullt og útúrspíttað og ekki munað eftir viðtalinu. Það er hægt að draga saman allt sem þeir sögðu með eftirfarandi málsgrein:

Peningar, já, ég vinn með svoleiðis. Tölur á blaði. Verkfæri sem á að sá og rækta og horfa á vaxa, annars deyr það. Eða eitthvað. Og kreppa? Rosalegt. Kyngimagnað alveg hreint. Aldeilis, seisei. Ég er með æxli.

Ekkert bitastætt, ekkert merkilegt. Bara tímasóun og spandering á tólfhundruð krónum sem ég hefði frekar átt að eyða í bjór á Celtic Cross og ég hefði eflaust skemmt mér betur og fengið frekari upplýsingar varðandi fjármálalífið með að stara á einhvern handahófskenndum róna fyrir framan Stjórnarráðið liggjandi í sinni eigin ælu og saur. Sem þessi mynd er.

Þetta er bara óttalegt rúnk með engu brundi. Líkt og kauði hafi gjörsamlega tæmt sig við að fróa sér eftir hvert viðtal og kömmar bara lofti.

Drasl!

3G III: Þrír Guðmundar

Fór á fimmtudaginn var í skrifstofur Símans og spurði um Guðmund Jóhannsson. Kom þá ljós að hjá Símanum starfa þrír Guðmundar Jóhannssynir. Eftir smá rannsóknarvinnu og aðstoð frá nokkrum starfsmönnum fannst hinn eini sanni Guðmundur Jóhannsson. Sá hinn sami sem ég einmitt ræddi við á mánudaginn var þá vikuna, en hann bauð mér það tilboð að að rifta sex mánaða bindissamningnum, skila netlyklinum og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af einhverjum öðrum skilmálum fyrir utan að ég mundi borga 10.000 króna sektina. Ég - enda er ég svo dipló - sagði honum að ég skyldi hugsa málið. Og það gerði ég.

Guðmundur þessi var ansi snar í snúningi þegar ritarinn við innganginn hóaði í hann. Ég var varla sestur í fína svarta IKEA-leðursófan í biðstofunni þegar hann kom stökkvandi inn og bauð mér góðan daginn. Fékk gestapassa hjá ritaranum, sem er bara samkvæmt prótókóli. Við spjölluðum bara á vinalegu nótunum - einsog siðmenntað fólk gerir. Guðmundur þessi, einsog ég hef áður minnst á og sem reyndist vissulega rétt, er prúður sómadrengur, skilningsríkur og snyrtilegur og eflaust vel metinn hjá Símanum og samstarfsmönnum.

Ég minntist á símtalið góða og að ég væri með “gagntilboð”. Við trítluðum niður stigan í matsalinn og hann bauð mér uppá dýrindis Símakaffi á Café Síminn, sem ég vitaskuld þáði með þökkum. Fengum okkur svo sæti í kaffistofunni og spjölluðum um daginn og veginn, vantrú og báknið. Svo snéri ég mér að alvöru málsins, þ.e. “gagntilboðið” sem hljóðaði á þessa leið: a) að ég mundi halda áfram með þennan 6 mánaða bindissamning og greiða fyrir áskriftartilboð 3, sem samsvarar 3990 krónur á mánuði eða b) greiða þennan tíu þúsund kall, skila netlyklinum, rifta þessum bindissamning og flytja öll mín símaviðskipti eitthvert annað.

Þetta var náttúrulega allt á vinalegu nótunum, enda óþarfi að hækka raust sína eða æsa sig af óþörfu þar sem maður hafði nú fengið nægan tíma til að róa sig niður síðan þessi 55 þúsund kall birtist á heimabankanum mínum. Hann sagðist ætla að athuga “baklandið” sitt og hafa svo samband við mig samdægurs eða daginn eftir. Við spjölluðum ögn lengur um lífið, tilveruna og allt saman þar til við ákváðum að hér væri komið gott af hjali, enda hafði ég annað við tíman að gera og hann líka. Hann fylgdi mér upp og að útganginum, tókumst í hendur einsog herramenn og kvöddumst.

Daginn eftir hringdi hann í mig og - viti menn - fyrirtækið Síminn vill endilega halda í mig og viðskiptin mín. Tel ég þessu máli hafa lokið farsællega fyrir alla aðila. Þannig endaði mitt epíska ævintýri um 3G-reikninginn frá símfyrirtækinu Síminn.

Og það varð mikil gleði og hamingja.

Mínar verstu martraðir

Mig á það til að dreyma og stundum dreymir mig alveg hræðilega drauma, svo hræðilega að ég tek um munninn á mér þegar ég vakna og andvarpa af þvílíkum létti að allur dagurinn verður umsvifalaust frábær sama hvað bjátar á. Ég er ennþá með tennurnar mínar. Ja, svona að mestu, vantar einn jaxl.

En tennur sem rotna og grotna eru án efa verstu mögulegu martraðir sem ég get fengið. Ég er að tala um þegar ég bryð tennurnar í sundur óafvitnandi, er að éta mat og jaxlarnir byrja að mölna, að ég kyngi óvart heilu tanngörðunum eða, sem er eitt það allra ógeðslegasta sem mig hefur dreymt, er að einkennileg brún kristalhúð myndast utanum um glerunginn og þegar ég rétt pota í það brotna þær.

Mig dreymir þetta ansi reglulega og þar af leiðandi bursta ég reglulega í mér tennurnar. Viðurkenni að ég mætti fara betur með stellið, en ég er bara af þeirri kynslóð þar sem strákhvolpar einsog ég vildu bara fá gervitennur - því það var svo fyndið.

Að vera hundeltur af risaeðlu og þurfa að upplifa það að vera étin í nokkrar mínútur er bara veisla miðað við það að missa tennurnar.

Þ.e.a.s. í draumi.

Að fá stuðning frá Auði Eir og Árna Jó?

Ef einhver blaðamaður mundi spurja mig - sem ritstjóra Vantrúar - um hinn fjölþreyfa prest Gunnar Björnsson, þá mundi ég skríkja einsog lítil skólastelpa og segja:

No Comment!

Og skella svo uppúr.

Ég fór svo að hugsa, ég mundi kannski segja eitthvað sæmilega órætt og dulið einsog “Hef aldrei áður á ævi minni séð almennilegt lestarslys.”

Séra Guðrún Karlsdóttir er ágætis grey

Batnandi mönnum er best að lifa, einsog sagt er. Vonandi að Þrolli þverhaus læri eitthvað af þessari virðingaverðri manneskju. En það er ljótt að breyta heilli færslu, frekar átt að gera nýja færslu og einnig opna fyrir athugasemdakerfið. Svo er einnig afskaplega ljótt að reyna koma svona illkvittnislegum orðrómi af stað.

Skamm, skamm Guðrún.

En svo ég breyti færslunni aðeins þá dró hún Guðrún orð sín til baka og bætti við öðrum orðum.

Séra Guðrún Karlsdóttir er rætin lygamörður!

Þessir ríkisstyrktu, rætnu töfralæknar eru með merkilegustu slefberum Íslandssögunnar. Þau skorta alla sómakennd og virðingin fer ávallt minnkandi með hverjum mánuði. Nú er ég ekki að tala um trú þeirra á Ézú og Gvuðsagjemlegjeml. Guðrún slefberi Karlsdóttir heyrði og heldur fram að dólgarnir í Vantrú séu að aðstoða fólk við trúfélagsskráningar á ölduhúsum. Eða einsog þessi kjelling segir sjálf:

Heyrst hefur af Vantrúarfólki með eyðublöð á öldurhúsum borgarinnar og á lóð Háskóla Íslands.

Hvar heyrði hún þetta? Þetta höfum við trúlausu dónarnir aldrei nokkurntíman gert. Eða heyrt. Við höfum nú einhverjar siðareglur varðandi þessa trúfélagsleiðréttingu og þær eru gróflega á þessa leið: Við nýtum okkur ekki vafasamt ástand einstaklinga og við truflum ekki fólk við lærdóm og/eða lestur.

Hvað taka þau upp á næst? Í alvöru?

Heyrst hefur að Vantrú standi fyrir blóðfórnir á uppstigningadag en þá slátra þeir geit með eyðnissmituðum hnífi, drekka blóðið og eta hrátt ket til að styrkja sig í vantrú sinni.

Guðrún Karlsdóttir, ef þú ert að lesa þetta: Fokkaðu þér. Hart.

Ögn meira um 3G

Ég birti gremjulegt blogg um daginn sem orsakaðis af meinsemdum net- og kjötheima, auk smá bjánaskap í mér með vott af leti og að lokum dálítið undirförlar auglýsingar og sæmilega óupplýst starfsfólk hjá símfyrirtækjum. Í stuttu máli var sú færsla á þessa leið: Skrifaði upp á sex mánaða bindissamning við Símann fyrir 3g netlykill eftir að ég sá auglýsingu frá Símanum varðandi það tilboð, þurfti bara að borga fyrir áskriftina en ekki netlykillinn sjálfan. Skráði mig á tilboð 2 sem hljómaði á þessa leið: 2990 krónur með sjö gígabæt í inniföldu gagnamagni með hraða allt uppað 3megabit á sekúndu. Umfram magn á gagnamagni eru 2 krónur á hvert megabit. Ég dánlódaði um 4 og hálfu gígabæti (ca. 3 kvikmyndir plús klám). 20 gígabæt öpplódað (98% af því í gegnum uTorrent og svo restin var tussan hennar Auðar Eir). Tímabilið hófst þann 10. september til dagsins í dag.

Orðið er: Gagnamagn.

Ég fékk reikning inná netbankan minn sem hljóðaði uppá 55 þúsund krónur þann 6. október. Þann 7 október er hringt í mig frá Símanum, þar kynnir kona sig með nafninu Ásta Ingólfsdóttir (minnir mig). Er manneskjan tilkynnti hvaðan hún hringdi brást ég hálffruntalega við með því að spurja “Ah, ætlar þú að útskýra fyrir mér hvernig stendur á því að ég fékk 55 þúsund króna reikning frá ykkur?” Og mér leið einsog ég hafi náð að véla fram skugga af dökkum skýjabólstrum yfir Ástu. Hún sagði mér að þetta væri útaf 3g netlyklinum. “Nú? Ég veit ekki betur en ég hafi alltaf passað hvað ég hef dánlódað.”

“Já, en hér kemur fram að þú hefur farið umfram gagnamagni um 20 gígabæt.” Þá varð ég hvumsa og tjáði það með orðum. “En, við erum tilbúin að lækka reikninginn niður í 10 þúsund krónur.” Ég brást með háði við þessu tilboði “Það er nú aldeilis rausnarlegt af ykkur. Ég skal þiggja það, en ég ætla þó að athuga þetta betur”

Svo athugaði ég upplýsingarnar sem hægt var að nálgast á þar tilgerðu forriti sem fylgdi netlyklinum og staðfesti bara það sem ég vissi þegar. Download fjögur og hálft gígabæt. Upload tæplega 20 gígabæt. Og var verið að sekta mig fyrir það?! Ég var, satt best að segja, afskaplega undrandi.

Ég hringdi í öll símfyrirtæki sem buðu uppá netlykilinn og þetta var bara það nákvæmlega sama á teningum hjá þeim. Fyrir utan þennan vetvang, þá vakti ég athygli á þessu á umræðuvefnum Töflunni - sem ég stunda ansi grimmt og baunaði þessu að Dr. Gunna sem svo setti það á okursíðuna.

Þann 12. október hringdi svo Síminn aftur í símann minn og á hinni línu var ungur maður að nafni Guðmundur Jóhannsson. Hann var með tilboð til að viðra fyrir mig. Honum hafði verið bent á bloggfærsluna og lesið hana og skilið gremju mína og pirring. “Mikill er máttur bloggsins” sagði hann og ég hló með honum.

Guðmundur þessi hljómaði einsog skýr sómadrengur. Hann útskýrði 3G-kerfið ögn betur. Ég er ekki góður í að vitna beint frá minni svo ég umorða útskýringuna: 3g er svo öðruvísi. Þetta er bara ein lína en ADSL er með tvær línur. (en samt getum við séð hversu mikið þú upphalar og hversu mikið þú niðurhalar, en þrátt fyrir það er þetta eitt. Þríeitt tækniundur). Semsagt gögnin sem þú upphalar og niðurhalar fara eftir sömu bandvídd.

Útskýringinn er náttúrulega einfölduð og Guðmundur útskýrði þetta nú betur en svo. Hann tók undir það að það hefði verið ágætt af starfsfólki Símans að útskýra fyrir manni með gagnamagnið í ljósi þess að búið er að ADSL-væða landsmenn. Einnig má benda á athugasemd Daníels í fyrri færslunni:

Nú sé ég ekki betur en að þarna sé verið að tvírukka fyrir þetta gagnamagn, þ.e. þú ert að borga bæði fyrir það sem þú hleður niður og eins það sem aðrir hlaða upp af þinni tölvu. Þeir notendur þurfa væntanlega líka að borga bæði fyrir upp og niðurhal, s.s. Síminn (og líklega öll önnur símafyrirtæki) eru þvi samkvæmt þessu að rukka tvisvar fyrir alla gagnaflutninga.

Tilboðið sem hann viðraði fyrir mér er á þessa leið: Ég hef kost á því að rifta þessum bindissamningi hvenær sem er án nokkurrar skuldbindinga. Bara að mæta í Símann og skila netlyklinum, en ég þarf samt að borga þennan tíuþúsund kall.

Ég sagðist ætla hugsa málið.

Og ég hef hugsað málið. Kýs að viðra það hér og hringja svo í Símann á morgun. Ég ætla að reyna á mátt bloggsins einu sinni enn.

Hvernig væri a) að ég borgi bara þennan 2990 krónur, einsog upprunalegi díllinn var og haldi bindissamningnum og borga svo mánaðarlega áskrift 3 í þann tíma, eða b) að ég borgi þennan tíuþúsund kall og símreikninginn í næsta mánuði og flyt svo öll mín viðskipti í eitthvert annað símfyrirtæki með hentugra tilboð sem hentar fjáraumum manni einsog mér sem innihéldi bæði GSM og netlykill á kannski… tja, viðráðanlegu verði. Vill einhver gera mér tilboð?

Svo einn spurning frá nemanda í viðskiptaháskólanum í Bifröst:

Hefuru ath hvað póst og fjarskiptastofnun hefur að segja um þetta? Netfyrirtækin þurfa heimild frá þeirri stofnun til að geta rukkað fyrir þetta.

Þrolli var einn í heiminum sínum

Einu sinni í 300 manna bæ var þverhaus sem hét Þrolli. Þrolli þessi var alveg gríðarlega þver. Og hávær. Hann skipti aldrei um skoðun á sínum níðslegu viðhorfum gagnvart háði og húmor og óverulega óréttlátan tilverurétt minnihlutahópa sem hann básúnaði hátt og snjallt og baðst aldrei afsökunar á óviðurkvæmilegum orðum gagnvart öðrum tilfinningaverum. Þrolli var nefnilega svo þver að hann taldi að þessar tilteknu tilfinningaverur hefðu engar tilfinningar því þau fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum. Þrolli átti ansi marga vini einu sinni en það átti eftir að breytast.

[Myndskreyting hér]

Flestum fannst Þrolli bara skrítinn sakleysingji með skrítnar skoðanir. Meira segja tilfinningarverurnar sem fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens létu hann að mestu óafskiptan. En því meir sem hann gjammaði um sínar skrítnu skoðanir því furðulegri urðu þær. En það var ekki fyrren Þrolli þverhaus fór að fikta í ní´nasismanum á sínum viðkvæmu únglíngsárum að halla fór undan umburðarlyndi tilfinningaverana sem fíluðu háð sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum. En engu síður, Þrolli þverhaus var meinlaust grey. Þó, sökum aðstæðna, þá byrjaði stóri vinahópurinn hans að ókyrrjast í kringum hann og nokkrir þurftu að flytja burtu frá honum Þrolla.

[Myndskreyting þarna]

Hann sagði þessar tilfinningarverur vera með ótrúlegan dónaskap og andstyggilegt hátterni sem truflaði hans tilveru alveg agalega mikið og vildu bara að þau mundu hætta þessu undir eins! Tilfinningaverurnar horfðu bara á hann af forundrun þegar hann öskraði í áttina að þeim.

[Klístra einni mynd hér]

En Þrolli þverhaus gerðist æ háværari með sínar skrítnu og furðulegu hugmyndir og amaðist enn meir útí tilfinningaverurnar sem fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum. En menn féllust hendur þegar hann hóf að iðka níðnánasisma og hóf upp raust sína á ansi niðrandi og óviðurkvæman hátt sem hann beindi að mestu að tilfinningaverunum sem fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum og sagði þau skorta samkennd, siðferði, kærleika og ást.

[Og hérna kannski líka]

Þessar tilfinningaverur vissu vitanlega betur, því fyrir utan að fíla háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum þá elskuðu þau fátt annað en samkennd, siðferði, kærleika og ást og reyndu að útskýra það hægt og rólega fyrir Þrolla þverhaus.

[Máske einnig hér]

En Þrolli þverhaus lét sér fátt um segjast og hélt áfram á sinni þveru braut þvermóðskufullar þverbrautar og viðhélt árum saman þessar sármóðgandi skoðanir sem hann sýndi öllum sem vildu lesa og heyra, en það voru fáir. Þó Þrolli þverhaus hafi ekki tekið sérstaklega eftir því þá fann hann fyrir vissum tómleika þegar stór hluti vina hans skiptu um símanúmer og heimilisfang og hurfu hægt og hljótt. En hann átti enn nokkra trausta og góða vini sem studdu við bakið á honum þegar á bjátaði.

[Aldrei að vita nema hér verði myndskreytt]

Svo varð Þrolli þverhaus orðinn að afskaplega gömlum manni. Og fólki var hætt að vera orðið sama um skoðanir Þrolla þverhaus sem nú var orðinn einarður fylgismaður síðníðnínásismans. Andlitið á honum var afmyndað af biturleika og lítill fugl kom og sagði mér að hans nánustu ættingjar og vinir höfðu ekki séð Þrolla þverhaus stökkva bros í næstum 50 ár.

Þrolli þverhaus sat aldeilis ekki á skoðunum sínum gagnvart þessum helvítis tilfinningaverum sem fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum og elskuðu fátt annað en samkennd, siðferði, kærleika og ást og ásakaði þau um að skorta allt traust, sómakennd, heiður, virðingu, umburðarlyndi og nær allar aðrar tilfinningar nema hatur.

[Og þetta er svívirðilega gott pláss]

Þá fékk fólk nóg, ekki síst tilfinningaverurnar sem fíluðu háð, sprell, skop, spaug, grín og glens í sæmilegum skömmtum og elskuðu fátt annað en samkennd, siðferði, kærleika og ást og báru traust til allra sem áttu það skilið, unnu starf sitt af sóma, hlutu virðingu samborgara sína og umbáru því sem næst hverju sem er og nutu þess að taka langar gönguferðir í blíðskaparveðri á sunnudögum með fjölskyldunni sinni og vinum. Meðan sat Þrolli þverhaus einn í húsinu sínu á hæðinni langt frá öllum hinum og hataðist inní herberginu sínu.

[Fokkmíinnðíesshól]

Hvernig ætli svipurinn hafi verið á Þrolla þverhaus þegar hann loksins uppgötvaði að hann var aleinn í hugmyndaheiminum sínum? Það fáum kannski aldrei að vita. En sagt er að Þrolli þverhaus þverskallast enn í gamla fúna steypuklumpnum á hæðinni í Borginni.

FÍN

[égtalikkispænsku!]

Þrolli þverhaus hallast að ní´nasisma

Þegar hann hatast útí minnihlutahóp, þá sakar hann þau um níð og reynir að munnhöggvast við þau á heimskulegan hátt, gerir heimskulegar kröfur og segir bara “ní”.ð  Fólk sem hallast að níðnasisma eru oft ungir, hraustir og guðfræðilega feitir einstaklingar með litla reynslu lífinu en því mun meira af dauðanum. Má segja að svoleiðis einstaklingar bindi náið samband við fólkið sem það umgengst mest. Eina leiðin til að stöðva þá er að fokka þeim upp með flugbeittum rökum, eiturhressum gögnum og flóði af skopi. Telja sig mikil gáfumenni og þykjast vera með gríðarlega þekkingu á orðsifjafræði.

Oft hörundssárir og svíður mest undan sárasaklausum fleiðusárum sem fæst af oddhvössum saumanálum.

Þrolli þverhaus fer yfir strikið

… þegar hann óbeint líkti mér og Vantrú við nýnasista í nýjustu athugasemd sinni undir innlegginu sínu Hver er þöggunarstjórinn? Sem átti víst tendra eld við allheitar umræður um þarna ESBíuna Jóhönnu Sigurðardóttur.

Hvað kallar þú hóp af mönnum sem hæðast að trú annarra (t.d. með því að mála hakakross á legsteina Gyðinga, breyta kirkjum í almenningssalerni, krota hatursorð um múslíma á veggi, afbaka og dreifa óhróðri um helg tákn sem skipta trúaða öllu máli?)

Ég ætti að vera ansi sár og svekktu, jafnvel skælandi og kjökrandi einsog prestskjeddlíng, en ég er eiginilega frekar hissa. Mjög hissa. Í raun svo hissa að ég ætla að athuga hvort að svona ummæli standist lög

Kannski var Þórhallur undir vissum hughrifum varðandi þessa spurningu sína og hvernig ætti að útlista hana betur, en einhverstaðar milli taugaboða í heila og því sem birtist, þá fátaðist hans hugsunarháttur. Það varð eitthvað skammhlaup í hausnum á honum. Það að skrifa greinar og það að spreyja hakakross á legsteina gyðinga er nefnilega akkúrat og nákvæmlega það sama. Ég las ekki þann hluta í Orðabók leyndardómana. Ef til vill ef ég skoða H-hlutann í þeirri bók að þar komi fram að “Hæðni” sé auðvitað þýðing á enska orðinu “Hate”.

Hvernig getur þessi góði, gáfaði, kærleiksríki og feiti maður virkilega skrifað svona án þess að skammast sín?

Hvaðan kemur allt þetta hatur?

Þrolli! Opnaðu hjarta þitt fyrir ástinni áður en þú verður aleinn í þínum eigin fokkt öpp heimi.

Þrolli þverhaus

Ég get ekki af þessu gert. En mér finnst Þórhallur Heimisson vera alveg gríðarlegur kjáni. Sérstaklega þegar kemur að hinni vandmeðfarni list að færa fram einhverskonar rök. Ég gerði þá skissu að lesa þessi samskipti milli hans og Vésteins og fékk svo mikinn kjánahroll að það hristi verulega upp í iðrum mínum og ég fékk niðurgang af heimsku.

Þórhallur er nefnilega búinn að semja alveg merkilega leiðinlega gátu, sjáið nú til. Og hún er svona:

Hvað kallar þú hóp af mönnum sem hæðast (ekki spaugara - heldur menn sem HÆÐAST) að trú annarra?

Svarið er ekki: Monty Python, spaugarar, grínarar, sprelligosar, flipparar, skröltormur eða menn sem sjá eitthvað spaugilegt við trú. Þórhallur vill auðvitað að svarið sé “Níðingar” því hann er eitthvað svo  - ég bara get ómögulega fundið annað betra orð sem lýsir þessari einkennilegri hegðun, svo ég verð bara að segja það - heimskur.

En svarið er auðvitað Fóstbræður.

Ég meina, hvað kallar þú mann sem spyr í sífellu sömu spurninguna en er alltaf óhress með svarið því það stangast á við einhverja furðuleg mótaða heimsmynd sem viðkomandi hefur?

Prestur, mundu kannski sumir segja.

Þverhaus er þó eina rétta svarið.

Anarkóbóhedófeminsti

Einstaklingur sem er skapandi nautnaseggur og kátur auðnuleysingji í nöp við stjórnvöld og fílar jafnrétti kynjana.

Þarf að líklegast uppfæra blogdoddlógóið.

Varið ykkur á 3G netlykli Símans, Vodafone og NOVA!

Ég vill byrja á að koma því á framfæri að ég gæti hafa verið óttalegur bjáni að hafa skrifað undir sex mánaða bindissamning við Símann fyrir 3g netlykli. Mér fannst þetta samt á sínum tíma - rúmum mánuði síðan - fínt tilboð. Ég ákvað semsagt að taka við netlyklinum frá símanum, taka við tilboði 2 og borga rúmlega 3000 krónur á mánuði fyrir - það sem ég hélt - væri 7 gígabæta niðurhal.

Svo kemur annað á daginn. Þeir rukka ekki fyrir niðurhalið eingöngu, þeir rukka fyrir allt gagnamagn. Semsagt það sem er öpplódað og dánlódað. Ég nefnilega hef alltaf passað mig á því hversu mikið ég niðurhala en hef ekki þurft ástæðu til að passa það hversu mikið er upphalað - enda engin ástæða til. Því ég hef nú alltaf haldið að það skipti engu máli.

Til að gera meðallanga sögu stutta þá hef ég niðurhalað fyrir sem samsvarar 4.37gb en upphalað fyrir 19.64gb. Enda er maður með t.d. torrent í gangi til að ná í eitthvað löglegt. Síminn rukkar - eða öllu heldur - sektar 2 krónur fyrir hvert mb umfram því sem maður niður/upphalar og viti menn, ég fæ reikning uppá 55 þúsund krónur!

Hringt er í mig í dag til að láta mig vita. En Síminn - eins góðhjartað sálarlausa stórfyrirtæki sem það er - í sinni einlægslega kærleika, er tilbúið að lækka reikninginn í 10.000 kall og setja mig á tilboð 3, sem þýðir að ég borgi 4000 krónur á mánuði.

Ég spyr: Er þetta eðlilegt?

Ég hef - mér vitanlega - aldrei heyrt um það að manni sé refsað fyrir það sem aðrir ná í í tölvunni minni. Þetta svipar til þess að maður þurfi að borga fyrir SMSinn sem aðrir senda manni. Algjörlega fáránlegt! Þorir maður að segja siðlaust.

Nú bíð ég eftir símtali frá Símanum til að útskýra hvernig á þessu gengur.

Stavsetningavillur!

Ælovitt!!1

Kristinn í þúsund ár!

Þess vegna eigum við að samþykkja IceSave!

Því við erum staðföst og borgum okkar skuldir að eilífu!

Hvernig skal reka fyrirtæki

Ekki ráða Davíð Oddson.