Viðvarandi netleysi á vinnustað

Fylgdist með tveimur samstarfsfélögum á vaktinni á vinnustaðnum hér í sveitinni að spila Solitaire í vinnutölvunni. Þannig er nú mál með vexti að slökkt er á netinu hér eftir klukkan sautjánhundruð í þeim tilgangi að spara og veita visst aðhald á símareikningum sem getur farið uppí tug, jafnvel hundruðþúsunda í hverjum mánuði. Þetta netleysi getur gert margann nútímamanninn bilaðan og ég varð vitni af þessari einstöku bilun sem lýsir sér þannig að upplifa eitthvað - bara eitthvað - á tölvuskjánum.

Þannig að þeir félagar spiluðu kapal í til þess að láta hann ganga upp - auðvitað - en það var ekki tilgangurinn, tilgangurinn var að maxa gluggann áður en kapalinn væri kláraður til að fylgjast með því þegar spilin skoppa á handahófskenndan hátt á skjánum og skilja eftir sig slóð og fylla uppí græna Solitaire-gluggan. Það var tilgangurinn. Og spennan var svakaleg!

Friðrik Gísla fyrirlítur gamlar konur úr Vesturbænum

Það er alveg með eindæmum hvað Friðrik Gísla er haldinn mikilli kvenfyrirlitningu þegar hann líkir mínu svartagallsrausi við það allra versta sem gamlar konur úr Vesturbænum geta tuðað um. Auk þess virðist hann telja að þær séu allar óhamingjusamar og þunglyndar og þurfa bara einhverja “meðferð” til að verða jákvæðar og glaðar.

Ég á bara ekki til eitt aukatekið orð yfir þessari mannvonsku og hatri. Mér bara fallast hendur þegar einhver fertugur iðnaðarmaður og aukinheldur getulaus táfýlukall sem býr einn í kjallaraholu sem hann leigir svart í Breiðholtinu, fer með svona svívirðilegar aðdróttanir gagnvart gömlum kerlingum úr Vesturbænum. Hann er eflaust gríðarlega bitur kall, einsog allir aðrir táfýlukarlar úr Breiðholtinu eru.

Þetta lundarfar hans má eflaust rekja til móður hans, sem eflaust er afskaplega hamingjusöm og góð kona en átti það til að kæfa greyjið Friðrik Gísla í æsku með of mikilli ást og ríkulegum gjöfum sem gerði hann fráhverfan vinum og öðrum ættingjum sökum þess að hann fann ekki fyrir jafnmikilli hlýju og ánægju hjá þeim líkt og hann gerði í funheitum barmi móður sinnar.

Greyjið Friðrik Gísla, ég bara hálfpartinn vorkenni manninum. Hann ætti kannski að fara í meðferð og verða jákvæðari, skrá sig á Einkamál punktur is og kaupa sér íbúð.

Merkilegt með þessar alhæfingar.

Tsk, tsk.

Bjarni Haukur Þórsson er ófyndinn aulabárður

Ég held það sé lítið við leikarana að sakast í þessum íslensku “klemmu”-gamanþáttum Marteinn - fyrir utan kannski Góa biskupsson sem greinilega lét glepjast af fagurgala leikstjóra og handritshöfund um að eftirherman hans af Indverja (eða Pakistana, eða afskaplega vafasöm túlkum á Kínverja) væri alveg “gríðarlega fyndið” og - miður fyrir trúverðugleika hans sem leikara - trúði því. Það hlutverk eitt og sér ætti að taka af allan vafa um að hér er á ferðinni afskaplega misheppnað íslenskt sjónvarpsefni sem mun ekki einu sinni eiga lífdaga á DVD, hvað þá VHS.

Afsakið að ég sletti, en kommðefokkonn?! Af hverju fengu þeir ekki alvöru útlending til að leika útlending. Þetta er eitthvað svo fyrir neðan allar hellur! Hvað næst? Tómas Lemarquis að leika negra? Af hverju túlkaði Gói ekki þennan bréfbera frekar einsog slefandi retarður? Ó, er Jói vinur hans kannski búinn að gera það í Fangavaktinni, þar sem hann lék einmitt retarð? Æ, æ.

En, einsog ég segi, það er lítið við leikarana að sakast, fyrir utan hvað þau eru léleg að leika. Aðal-illmennið í þessum ömurlega gamanleik er Bjarni Haukur Þórsson. Þessi maður - ef marka má Martein - hefur ekki hundsvit á húmor, hvað þá - einsog gefið er til kynna - amerískum sit-com-þáttum. En því var slengt fram að þessir þættir eru gerðir í þeim anda.

Af þessum tveim þáttum sem ég hef séð þá hef ég ekki einu sinni hlegið, varla flissað og þegar ég fer að hugsa nánar útí það, þá hreyfðust ekki munnvikin á mér nema kannski þegar ég sagði “Hvern andskotan er verið að bjóða fólki uppá?” eða “Djísús fokking kræst, á þetta að vera fokking fyndið?!”

Þetta er bara ekkert fyndið og það sem gerir þetta alveg pínlega ófyndið er fokking dósahláturinn - sem er víst ekki dósahlátur, heldur alvöru fólk að hlæja meðan á upptökum stendur, sem er vægast sagt ótrúlegt. Rámar eitthvað í það að það hafi verið reynt einhvern tíman áður í öðrum íslenskum gamanþáttum sem ég man ekki rassgat hvað kölluðust, en minnið skjöplast ekki þegar ég held því fram að þeir þættir voru á svipuðum kalíber og þessi mahafakking Marteinn. Það er að segja, svo það fari ekki á milli mála, alveg stórfenglega ömurlegt og ófyndið!

Að fá hvítan lókal mann til að leika útlending með dökka hörund… ég hélt að það hefði dottið úr tísku 1960 og eitthvað. Þá rann upp fyrir mér, gæti verið að Bjarni Haukur Þórsson sé einmitt að leita eftir inspírjason í tæplega hálfrar aldar amrískum sit-com-þáttum? Það gæti útskýrt þetta allslæma skopskyn sem maður augljóslega þjáist af, líkt og hann væri með illkynja æxli í eistunum.

Þoli ekki ömurlegan húmor, sérstaklega ömurlegan íslenskan húmor. Og þoli ekki heldur að vita það að töluverðum fjármunum er dælt í svona kjaftæði sem hefði frekar mátt rata inná tjekkareikninginn minn.

Og því minna sagt um Spaugstofuna, því betra.

Snæbjörn Steingrímsson er ímyndunarveikur gróðapúngur

Ég held í alvöru að Snæbjörn eigi eitthvað bágt með að leggja saman tvo og tvo. Þegar fyrsti þátturinn af Fangavaktinni var settur á netið og hlaðað niður af þúsundum einstaklinga þá gjammaði þessi vanviti um það að framleiðendur væru beinlínis að tapa á þessu niðurhali og nú ætlaði sko Smá-Ís að sýna þessum glæpamönnum hvar Maó keypti ölið, og í einkennilegri bræði sinni lýsti hann því yfir að hann ætlaði að kæra fólk - af handahófi - fyrir þennan stórkostlega þjófnað.

Bíddu. Halló?! Hverskonar tegund af steik er þessi maður?

Ég veit ekki betur en að Nætur- og Dagvaktin séu með söluhæstu innlendu mynddiskum síðari ára. Sú staðreynd sannar það að framleiðendur eru ekkert að tapa á þessu niðurhali. Langt í frá. Og þeir þættir voru nú niðurhalaðir líka af þúsundum einstaklinga en mynddiskarnir - og nú vona ég að ég sé ekki fara með eitthvað fleipur - seldust eflaust í tugþúsundum. Hvar er tapið?

Ef framleiðendurnir hefðu tapað á því tiltekna niðurhali - einsog þessi meðalgreindi mannapi hélt fram þá og heldur fram nú - þá hefði ekki verið haldið áfram með framleiðslu þáttana. Þeir eru - án efa - að stórgræða á þessum þáttum! Veit ekki betur en að það á að hefja sýningar (eða byrjað á því) á þessum þáttum á hinum ýmsu sjónvarpsstöðum annarsstaðar á Norðurlöndunum. Svo eru víst fregnir um áhugasama einstaklinga hjá Bandarískum sjónvarpsstöðum um að endurgera þessa þætti þar. Hvar er tapið?

Hvaða rosalega tap  er þessi maður að tala um? Þetta rosalega tap er ekkert annað en ímyndað tap sem er unnið útfrá einhverskonar síðvúdú-hagfræði-kenningum sem er aðeins hægt að finna í vænissjúka kollinum á þessum geðbilaða manni. Auk alvarlegra ranghugmynda er hann með afskaplega alvarleg einkenni af internetfóbíu og allt sem viðkemur nútíma tækni. Það var eflaust hann sem kom með þá brjálæðislegu ákvörðun á sínum tíma að gefa Fóstbræður EKKI út á DVD, frekar á VHS, því DVD var bara eikker tískubóla skilurru sem mundi bra hverfa sko.

En ef ekki, þá breytir því ekki að þessi maður er fáviti og ætti að vera rekinn. Aðeins extrím nöttkeis mundi láta sér detta það í hug að draga einhverjar ip-tölur úr potti og fara kæra handahófskennt fólk fyrir að niðurhala þætti úr þáttaröð sem var ekki einu sinni búinn og varla byrjuð - hvernig veit hann t.d. að allt þetta fólk er ekki bara með Stöð 2 en er að vinna vaktavinnu? Hann ætti að skella á sig múl áður en hann tjáir sig aftur í fjölmiðla og fokking hugsa sinn gang, hefur hann spáð í vinnunni og fjármagnið sem fer í svona aðgerðir einsog hann stingur uppá? Snæbjörn! Það er alveg gríðarleg vinna og fjármagn sem fer í svona aðgerðir, bara svona ef ske kynni að þú rekist á þessa færslu.

Fangavaktin á eftir að rokseljast þegar það kemur út á DVD, rétt einsog hinar tvær þáttaraðirnar. Og Bjarnfreðarson á hugsanlega eftir að vera ein vinsælasta íslenska kvikmynd sem gerð hefur verið.

Snæbjörn, ef það vill svo heppilega til að þú sért að lesa þetta; skammastu þín og stingdu kúpunni uppí rassgatið á þér og vertu þar með þinn illa greidda skíthaus!