Breaking Bad

Walter White er efnafræðikennari í framhaldskóla og til að reyna ná endum saman er hann með aukavinnu á bílaþvottastöð, en þó rétt skrimtir hann og fjölskylda hans. Hann er giftur Skyler og saman eiga þau soninn Walter White Jr. og eiga von á öðru barni og búa þau saman í frekar góðu úthverfi í ónefndri borg.

Þegar þáttaröðin hefst þá er hann að verða fimmtugur svo að konan hans heldur stórafmæli og býður vinum og vandamönnum, þar á meðal bróður sínum og konu hans. Mágur hans Walts, Hank, vinnur hjá fíkniefnalögreglunni (DEA) og þegar líður ögn á veisluna stillir hann á sjónvarpið til að gorta sig af viðtali eftir vel heppnaða lögregluaðgerð þar sem metamfetamín-stofa var upprætt, í þessari aðgerð fundust líka rúmlega sjö hundruð þúsund dollarar í beinhörðum peningum. Þetta vekur eilítinn áhuga hjá Walt sem spyr hvort þetta sé eðlilegt magn af fjármagni sem lögreglan finnur í svona aðgerðum. “Það getur verið minna en oft er það miklu meira” segir Hank. Hank býðst svo til að taka hann með í svona aðgerð, leyfa honum að fylgjast með. Walter neitar, en hefur þetta tiltekna tilboð samt í huga.

Nokkrum dögum síðar hnígur hann niður í bílaþvottastöðinni eftir heiftarlegt hóstakast. Þegar hann vaknar er hann í sjúkrabíl á leiðinni í sjúkrahús, sjúkraliðinn spyr hann hvort hann reykir. “Nei, það hef ég aldrei gert!” segir Walter.

Eftir almenna skoðun er honum drifið í sneiðmyndatöku. Hann er greindur með krabbamein á háu stigi í lungun. Walter er ekki í góðum fjárhagslegum málum og heilbrigðisþjónustan í Bandaríkjunum er alveg feiknarlega dýr sér í lagi krabbameinsmeðferð sem geta kostað tug- og jafnvel hundruðþúsund dollara. Hann segir engum frá þessu, en leggst undir feld. Grái fiðringurinn kikkar inn af fullu blasti, hann hættir hjá bílaþvottastöðinni með látum. Svo spyr hann Hank hvort hann gæti komið með honum til að fylgjast með einu dröggbösti.

Hann situr í bíl með Hank og félaga hans í einhverju millistéttarúthverfi og verður eftir þegar aðgerðirnar hefjast. Þegar lögreglan gerir innrás í metamfetamínstofunna tekur Walt eftir manni sem skríður útum glugga í nærliggjandi húsi. Honum verður starsýnt á hann og þekkir hann sem Jesse Pinkman. Hann heldur þessum upplýsingum útaf fyrir sig.

Eitt kvöldið mælir hann sér móts við Jesse og gerir honum tilboð. Honum vantar “kokk” til að gera metamfetamín og Walter er hámenntaður efnafræðingur og býður fram krafta sína. Jesse er með tengslin og báðum vantar peninga. Jesse er hikandi í byrjun en samþykkir. Walter kokkar svo 99,4% hreint metamfetamín sem er hreinasta og besta metamfetamín sem Jesse Pinkman hefur séð og smakkað.

Þannig byrjar fyrsti þátturinn af Breaking Bad sem er án efa eitt besta sjónvarpsefni sem ég hef séð, og lendir í toppsætinu ásamt Dexter. Þetta er bliksvört kómedía og mjög raunverulegar aðstæður eðlilegs manns sem þarf að takast á við líf sitt sem hefur gefið honum heldur léleg spil uppá síðkastið.

Þetta er snilldarlega vel leikið, þar er enginn leikari sem stendur sig illa. Ekki einn. En þeir sem standa uppúr eru tveir. Bryan Cranston, sem er betur þekktur sem taugaveiklaði faðirinn í Malcolm in the Middle sýnir þarna hversu gífurlega hæfileikaríkur leikari hann er í raun og er algjört dínamít í þessu hlutverki og svo er það Aaron Paul er leikur Jesse Pinkman sem sýnir jafnmikla snilli og Cranston í sinni túlkun á hegranum Pinkman og saman eru þeir eitt skemmtilegasta tvíeyki sem ég hef á ævi minni séð.

Sérstaklega sterk og góð saga, gífurlega gott handrit og gríðarlega góð samtöl draga mann inní þennan heim og þættirnar halda dampi og maður er heltekinnfrá byrjun til skyndilegs enda, en þættirnir eru ekki nema sjö og miðað við efnið, baksögur og aðalsögu þá skilur síðasti þátturinn mann eftir með fullan brunn af vatni í munninum fyrir meira stöffi. Ég var agndofa eftir síðustu tvo þættina. Mig grunar að þetta sé byrjun á alveg gífurlega epískri sögu. Ég sat fyrir framan sjónvarpskjáinn og horfði á hvern einn og einasta þátt frá klukkan 10 að morgni til rúmlega tvö eða hálfþrjú. En þannig er mál með vexti að það þurfti að stöðva framleiðslu þáttana útaf handritshöfundaverkfallinu í Hollívúd.

En sem betur fer kemur önnur sería sem mun vonandi slaufa alla þessa brilljant hliðarsöguþræði og enda þáttaröðina með blasti. Ég mæli með því að þú, lesandi góður, niðurhalir þessum þáttum í hvelli og njótir hverra einustu mínútu með Walter White, fjölskyldu hans, vafasömum vinum og ýmsum ævintýrum með skuggalegu fólki.

Fara í bíó hvað? Hollívúd má fara dæla meira fjármagni í sjónvarpið og dekra alminilega við góða handritshöfunda einsog sá sem skóp þessa, Vince Gilligan að nafni.

Gríðarlega gott stöff.

Mín fyrstu kynni af Jekyll

Sá auglýsingu á Skjáeinum að ný þáttaröð væri að byrja í gærkvöldi. Sú þáttaröð heitir Jekyll og er, einsog nafnið ýjar að og auglýsinginn staðfestir, lauslega byggð á The Curious Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde eftir Robert Louis Stephenson. Ég hef ekki enn lesið þá bók, rétt einsog ég hef ekki enn lesið margar bækur, en stefni að því einhvern góðan veðurdag.

James Nesbitt leikur titilkarakterinn, þannig séð, en heitir Dr. Tom Jackman og einnig leikur hann Mr. Hyde sem er illkvittnislegur djöfull í mannsmynd. Þessi þættir vöktu minn áhuga því ég hélt að hér væri á ferðinni eitthvað sambærilegt og Dexter, en það er langt í frá. Dexter fjallar um einstakling sem fagnar sínu óeðli og nýtir sér það til brenglaðs réttlætis. Jekyll á aðra hönd fjallar um karakter sem er í hálfgerðu stríði við sitt óeðli, þar sem hann er í raun tveir mismunandi einstaklingar í sama líkama.

Það verður að segjast að þessir þættir lofa nokkuð góðu, virðast vera loforð um maximum brutalitu og blóðsúthellingar, sæmilega áhugaverð saga með yfirnáttúrulegum tendensum. James Nesbitt stendur sig alveg feiknarlega vel í báðum hlutverkum og er alveg sérlega krípí og skemmtilegur sem Mr. Hyde og góður “daglegur” maður sem Dr. Jackman sem þarf að kljást við ýmis furðulegheit. Það sem fer dálítið í pirrurnar á mér eru ostkenndar eitíshryllingsmyndataktík til að láta áhorfendann bregða og sá hluti söguþráðsins sem virðist vera massívt samsæri sem teygir anga sína útúm allt.